Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning 2022
Samkvæmt lögum um húsnæðisbætur nr. 75/2016 þarf að sækja um sérstakan húsnæðisstuðning til sveitarfélaga. Sækja þarf um fyrir hvert almanaksár.
Almennan húsnæðisstuðning skal sækja um til Húsnæðis-og mannvirkjastofnunar | www.hms.is
Foreldrum og/eða forsjáraðilum 15 - 17 ára ungmenna sem leigja herbergi á heimavist eða námsgörðum hér á landi vegna náms fjarri lögheimili er bent á að endurnýja þarf umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning í janúar.
Með umsókninni þarf að fylgja húsaleigusamningur og staðfesting skóla á námi barns.
Umsóknir um sérstakan húsnæðisstuðning eru aðgengilegar inná mín Árborg
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir 15-17 ára
Ath.:
Umsókn skal hafa borist eigi síðar en 20. janúar 2022