Varnaræfingin Norður-Víkingur 2026
Varnaræfingin Norður-Víkingur 2026 fer fram dagana 22. ágúst til 3. september 2026 á grundvelli tvíhliða varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna. Um reglubundna æfingu er að ræða en Norður-Víkingur er að jafnaði haldin á Íslandi annað hvert ár. Meginmarkmið Norður Víkings er að æfa varnir Íslands, þar með talið varnir mikilvægra innviða, sjóleiðirnar umhverfis Ísland, leit og björgun, gistiríkjastuðning og samhæfingu íslenskra stjórnvalda við herstjórnir Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins.
Bandaríski flugherinn tekur þátt í æfingunni með C-130J (Hercules) flugvélum og fyrirhugað er að þessar flugvélar æfi lendingar á flugvöllunum á Selfossi og Hellu á tímabilinu 22. ágúst til 3. september. Vélarnar verða hinsvegar staðsettar á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Í umboði utanríkisráðuneytisins hafa starfsmenn varnarmálasviðs Landhelgisgæslunnar fundað með fulltrúum ISAVIA og upplýst Samgöngustofu. Þá hafa fulltrúar bandaríska flughersins farið í skoðunarferð um svæðið með starfsmönnum Landhelgisgæslunnar. Niðurstaða Bandaríkjamannana var að flugvellirnir á Selfossi og Hellu henta sérstaklega vel í slíkar æfingar. Þá hefur verið rætt við viðbragðsaðila á staðnum og gert er ráð fyrir að slökkvilið og lögregla verði með viðveru á meðan lendingaræfingarnar eiga sér stað, ásamt fulltrúa varnarmálasviðs Landhelgisgæslunnar. Tilkynningar verða sendar út á samfélagsmiðlum fyrir æfingalendingarnar.

