Verktakar athugið
Verktökum stendur til boða skráning á verktakalista vegna viðhaldsverkefna Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2020 - 2021 Mannvirkja- og umhverfissvið Sveitarfélagsins Árborgar óskar eftir umsóknum verktaka til þátttöku í væntanlegum verðfyrirspurnum í tímavinnu vegna endurbóta, viðhaldsvinnu o.fl. í verkefnum á vegum sveitarfélagsins. Um er að ræða viðhaldsvinnu í öllum deildum Mannvirkja- og umhverfissviðs, eignadeild, Selfossveitum og þjónustumiðstöð.
Fyrir skráningu á verktakalista og upphaf verka sem verktaki mun annast fyrir Mannvirkja- og umhverfissvið, mun verktaki verða krafinn um staðfestingu á skuldastöðu við lífeyrissjóði og ríkissjóð. Einungis þeir verktakar koma til greina, sem eru í skilum með lífeyrissjóðsiðgjöld og opinber gjöld. Uppgefið tímavinnugjald verður fast í eitt ár frá dagsetningu á samþykktri umsókn.
Tekið er við umsóknum til og með 10. maí 2020.
Hægt er að nálgast gögn á netfangið mannvirkja.umhverfissvid@arborg.is
Mannvirkja- og umhverfissvið Sveitarfélags Árborgar