Viljayfirlýsing um jarðhitaréttindi og deiliskipulag
Sveitarfélagið Árborg og eigandi Selfoss 1 hafa undirritað viljayfirlýsingu um jarðhitaréttindi í landi Selfossbæja og áforma um deiliskipulag fyrir íbúðabyggð.
Eigandi jarðarinnar Selfoss 1 sem er hluti af svokölluðum “Selfossbæjum” hefur kynnt áform sín um að deiliskipuleggja íbúðabyggð á 2,7 ha svæði úr jörðinni líkt og kemur fram á yfirlitsmynd. Landeigandi hefur að auki lýst yfir áhuga á að vinna með sveitarfélaginu að aukinni jarðhitaleit á jörðinni.
Málið var tekið fyrir í bæjarráði fimmtudaginn 3.október og viljayfirlýsingin samþykkt samhljóða
Með viljayfirlýsingunni eru aðilar sammála um að vinna áfram að þessum málum. Selfossveitur vinna í framhaldinu með landeiganda að samkomulagi um jarðhitaréttindi, rannsóknir og hugsanlega vinnslu á heitu vatni.
Eigandi Selfoss 1 getur samhliða sent skipulagsnefnd formlega ósk um að deiliskipuleggja umrætt svæði á eigin kostnað. Um er að ræða spennandi svæði við Þóristún og Selfossbæi undir íbúðabyggð þar sem horft er til lágreistrar byggðar með rúmlega tuttugu einbýlishúsalóðum og mögulega par- og raðhúsalóðum.
Það voru Bragi Bjarnason, bæjarstjóri og Jörundur Gauksson, lögfræðingur landeiganda sem undirrituðu viljayfirlýsinguna.
“Þetta er mikilvægur áfangi fyrir báða aðila. Sveitarfélagið getur í samráði við landeiganda tryggt aukið svæði innan Selfoss til leitar á heitu vatni og landeigandi unnið áfram að spennandi framtíðarskipulagi á hluta jarðarinnar” sagði Bragi Bjarnason, bæjarstjóri við undirritunina.