Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Leikskólinn Strandheimar | Brimver & Æskukot

Brimver, Eyrarbakka: Túngötu 39 v. Vinatorg
Æskukot, Stokkseyri: Blómsturvöllum 1
Sími: 480 6352
Netfang: strandheimar@arborg.is
Vefur: strandheimar.arborg.is

Leikskólastjóri: Birna Guðrún Jónsdóttir | birnagj@arborg.is
Aðstoðarleikskólastjóri: Eva Björk Friðjónsdóttir | eva.bjork.fridjonsdottir@arborg.is
Sérkennslustjóri: Elísabet Ómarsdóttir |  elisabet.omars@arborg.is  

Opnunartími er frá kl. 7:45 - 16:15

Leikskólinn Strandheimar starfar á tveimur starfsstöðvum, Brimveri á Eyrarbakka og Æskukoti á Stokkseyri. Leikskólinn er fjögurra deilda og eru eldri og yngri deild á hvorri starfsstöð. Á Brimveri eru deildirnar Merkisteinn og Kötlusteinn og á Æskukoti Bátaklettur og Fiskaklettur.

Strandheimar starfar á grundvelli Aðalnámskrár leikskóla, Menntastefnu Árborgar og Læsisstefnu Árborgar. Leikurinn er kjarninn í námi og þroska barna og lögð er áhersla á að börnin hafi tíma, rými og tækifæri til að þróa leik sinn, tengsl, sköpun og nám.

Leikskólinn er Heilsueflandi leikskóli og unnið er í anda Jákvæðs aga. Þá er Vinátta í nærumhverfinu ein af áherslum Strandheima, þar sem lögð er áhersla á tengsl barna og starfsfólks milli starfsstöðvanna tveggja, samstarf við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri (BES) og tengsl við nærumhverfi og samfélag.

Leiðarljós Strandheima

Leiðarljós Strandheima eru Vellíðan – Sköpun – Virðing og eru þau leiðarvísir í öllu starfi og samskiptum leikskólans. Við leggjum áherslu á að börn og fullorðnir upplifi öryggi og vellíðan, að samskipti einkennist af virðingu og að sköpun, forvitni og frumkvæði fái að njóta sín.

Það er ósk okkar að börnin:

  • upplifi leikgleði, vellíðan og öryggi
  • fái rík tækifæri til leiks, sköpunar og könnunar
  • efli félagsfærni, samskipti og vináttutengsl
  • fái að hafa rödd, taka þátt og hafa áhrif
  • kynnist nærumhverfi sínu og upplifi tengsl við samfélagið
  • öðlist jákvætt viðhorf til hreyfingar, útiveru og heilbrigðra lífshátta

Hlutverk starfsfólks er að skapa öruggt, hvetjandi og fjölbreytt námsumhverfi, byggja upp góð tengsl við börnin og vera til staðar í leik þeirra. Starfsfólk styður við frumkvæði, samskipti og nám barnanna og hefur að leiðarljósi að leikurinn er meginnámsleið barna í leikskóla.

Símaskrá Strandheima

480 6352 Leikskólastjóri
480 6353 Aðstoðarleikskólastjóri
480 3275 Merkisteinn á Brimveri
480 3274 Kötlusteinn á Brimveri
480 6356 Bátaklettur á Æskukoti
480 6357 Fiskaklettur á Æskukoti


Sjá heimasíðu Strandheima

Brimver, Eyrarbakka: Túngötu 39 v. Vinatorg

Æskukot, Stokkseyri: Blómsturvöllum 1


Þetta vefsvæði byggir á Eplica