182. fundur bæjarráðs
182. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn fimmtudaginn 15. maí 2014 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10.
Mætt: Eyþór Arnalds, formaður, D-lista, Sandra Dís Hafþórsdóttir, bæjarfulltrúi, D-lista, Eggert Valur Guðmundsson, bæjarfulltrúi, S-lista, Helgi Sigurður Haraldsson, áheyrnarfulltrúi, B-lista, Þórdís Eygló Sigurðardóttir, áheyrnarfulltrúi, V-lista, Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
Fundargerðir til staðfestingar |
||
1. |
||
76. fundur haldinn 2. maí |
||
Fundargerðin staðfest. |
||
|
||
2. |
||
44. fundur haldinn 8. maí |
||
-liður 6, styrkur úr Sprotasjóði. Bæjarráð fagnar því að styrkur fékkst frá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri til verkefnisins "Að auka hæfni, þekkingu og leikni leikskólabarna í læsi". Fundargerðin staðfest. |
||
|
||
Fundargerðir til kynningar |
||
3. |
||
156. fundur haldinn 29. apríl |
||
Lagt fram. |
||
|
||
Almenn afgreiðslumál |
||
4. |
1405184 - Aðgangur að Sundhöll Selfoss og sundlaug Stokkseyrar - kvennahlaup ÍSÍ 2014 |
|
Bæjarráð samþykkir að frítt verði í sundlaugar í Árborg fyrir þátttakendur í kvennahlaupi ÍSÍ hinn 24. júní nk. |
||
|
||
5. |
1405189 - Frumvarp til laga um veiðigjöld |
|
Bæjarráð hvetur Alþingi til að gæta þess að við breytingar á fiskveiðilöggjöfinni verði ekki svæðisbundin mismunun hvað varðar álagningu veiðigjalda. |
||
|
||
6. |
1405135 - Orlof húsmæðra 2013, skýrsla orlofsnefndar, dags. 22. apríl 2014 |
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
7. |
||
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um erindið. |
||
|
||
8. |
1402072 - Lóðarumsókn Leós Árnasonar fyrir húsið Ingólf að Eyravegi 1, dags. 9. febrúar 2014 |
|
Bæjarráð veitir vilyrði á grundvelli 8. gr. reglna um úthlutun lóða í Sveitarfélaginu Árborg fyrir lóðinni að Eyravegi 1. Bæjarráð setur það skilyrði fyrir vilyrðinu að húsið Ingólfur verði flutt á lóðina að nýju og að það verði gert upp. Vilyrðið gildir til sex mánaða. |
||
|
||
9. |
1403135 - Lóðarumsókn Sverris Rúnarssonar vegna lóðarinnar Eyravegur 1, dags. 24. febrúar 2014 |
|
Bæjarráð hafnar umsókninni. Gert er ráð fyrir að hið sögufræga hús Ingólfur komi á lóðina að nýju. |
||
|
||
10. |
1404192 - Samningur milli Selfosssóknar og Sveitarfélagsins Árborgar um æskulýðsstarf |
|
Bæjarráð staðfestir samninginn og felur framkvæmdastjóra að undirrita hann. |
||
|
||
11. |
1405213 - Samningur Sveitarfélagsins Árborgar við Leikfélag Selfoss - endurskoðun |
|
Bæjarráð staðfestir samninginn og felur framkvæmdastjóra að undirrita hann. |
||
|
||
12. |
1405216 - Selfossvöllur - JÁVERKS-völlurinn |
|
Bæjarráð heimilar fyrir sitt leyti heitið JÁVERKSvöllur á knattspyrnuvelli á Selfossvelli. |
||
|
||
13. |
1401023 - Hlutverk og skilgreining Selfossflugvallar til framtíðar |
|
Sigurjón Valsson, flugstjóri og form. Íslenska flugsögufélagsins, Margrét Hallmundsdóttir, fornleifafræðingur, og Helgi Sigurðsson frá Flugklúbbi Selfoss komu inn á fundinn og kynntu hugmyndir um að flugsafn verði flutt á Selfoss. Stefnt er að undirritun viljayfirlýsingar um að safnið komi á svæði við Selfossflugvöll. |
||
|
||
14. |
1405182 - Málefni skátafélagsins Fossbúa |
|
Fulltrúar stjórnar skátafélagsins Fossbúa komu á fundinn. Rætt var um framtíðarhúsnæði félagsins. |
||
|
||
15. |
1301154 - Málefni hjúkrunarheimila |
|
Bæjarráð Árborgar lýsir yfir vonbrigðum vegna ummæla heilbrigðisráðherra í Sunnlenska fréttablaðinu í þessari viku um stöðu hjúkrunarrýma á Suðurlandi. Ljóst er að brýn þörf er fyrir uppbyggingu dvalar- og hjúkrunarrýma, ekki síst í Árnessýslu. |
||
|
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 10:15
Eyþór Arnalds |
|
Sandra Dís Hafþórsdóttir |
Eggert V. Guðmundsson |
|
Helgi Sigurður Haraldsson |
Þórdís Eygló Sigurðardóttir |
|
Ásta Stefánsdóttir |