5. fundur bæjarráðs
5. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2014-2018, haldinn fimmtudaginn 14. ágúst 2014 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10
Mætt: Gunnar Egilsson, formaður, D-lista, Sandra Dís Hafþórsdóttir, bæjarfulltrúi, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, varamaður, S-lista, Helgi Sigurður Haraldsson, áheyrnarfulltrúi, B-lista, Már Ingólfur Másson, varamaður áheyrnarfulltrúa, Æ-lista, Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar, sem ritaði fundargerð.
Leitað var afbrigða til að taka á dagskrá fundargerð íþrótta- og menningarnefndar. Var það samþykkt samhljóða.
Bæjarráð þakkar þeim sem stóðu að bæjarhátíðunum Sumar á Selfossi og Aldamótahátíðinni á Eyrarbakka og viðburðunum, Olísmóti, Brúarhlaupi og Delludegi um sl. helgi fyrir frábært framtak.
Dagskrá:
Fundargerðir til staðfestingar |
||
1. fundur haldinn 8. ágúst |
||
-liður 11, 1403321, beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um leyfi til reksturs gististaðar að Helgafelli, Eyrargötu 22, Eyrarbakka. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um erindið. -liður 12, 1407094 beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um leyfi til reksturs gististaðar að Tindastóli, Búðarstíg 8, Eyrarbakka. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um erindið. -liður 39, tillaga að breyttu deiliskipulagi Byggðarhorns, bæjarráð samþykkir að tillagan verði auglýst. -liður 40, beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um leyfi til reksturs gististaðar (gististaður án veitinga - íbúð) að Túngötu 9, Eyrarbakka. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um erindið. Fundargerðin staðfest. |
||
|
||
1. fundur haldinn 13. ágúst 2014 |
||
-liður 3, útitafl á Selfossi. Bæjarráð samþykkir að styrkja Fischersetrið um 100.000 krónur til kaupa á taflmönnum til að nota utan húss. Fundargerðin staðfest. |
||
|
||
Almenn afgreiðslumál |
||
3. |
1407119 - Skipan fulltrúa í byggingarnefnd vegna viðbyggingar við Sundhöll Selfoss |
|
Bæjarráð skipar eftirtalda fulltrúa áfram til setu í nefndinni: Gunnar Egilsson, Eyþór Arnalds og Örnu Ír Gunnarsdóttur. |
||
|
||
4. |
1408016 - Tilnefning í starfshóp um Fuglafriðland í Flóa |
|
Bæjarráð skipar eftirtalda fulltrúa áfram til setu í starfshópnum: Ara Björn Thorarensen og Írisi Böðvarsdóttur. |
||
|
||
5. |
1408017 - Skipan fulltrúa í samstarfshóp vegna uppbyggingar á íþróttavallarsvæðinu við Engjaveg |
|
Bæjarráð skipar eftirtalda fulltrúa til setu í starfshópnum: Gunnar Egilsson, Kjartan Björnsson og Helga S. Haraldsson. |
||
|
||
6. |
1209077 - Skipan fulltrúa í byggingarnefnd vegna stækkunar á verknámshúsi við FSu |
|
Bæjarráð skipar Ástu Stefánsdóttur til áframhaldandi setu í byggingarnefndinni. |
||
|
||
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til íþrótta- og menningarnefndar. |
||
|
||
Erindi til kynningar |
||
1406074 - Breytt tímatafla strætós innan Árborgar frá hausti 2014 |
||
Kynnt var ný áætlun strætós innan Árborgar sem tekur gildi 25. ágúst. |
||
|
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 9:15
Gunnar Egilsson
Sandra Dís Hafþórsdóttir
Arna Ír Gunnarsdóttir
Helgi Sigurður Haraldsson
Már Ingólfur Másson
Ásta Stefánsdóttir