Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 120

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
01.11.2023 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2310349 - Árvegur HSU - Búningsklefar, breyting
Sigríður Magnúsdóttir hönnunarstjóri hönnuður fyrir hönd Ríkiseigna sækir um leyfi til að breyta núverandi suðvesturhluta kjallara hjúkrunarheimilis í mhl 03 með því að setja upp milliveggi sem afmarka þrjá búningsklefa.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
2. 2302251 - Árvegur HSU - Hús fyrir varaaflvél
Sótt er um leyfi til að breyta frágangi hússins að utanverðu þannig að það verði einangra að utanverðu og klætt hvítri bárujárnsklæðningu í stað þess að pokapússa eins og áður var samþykkt.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við breytingu á útliti.
Samþykkt
3. 2203245 - Ástjörn 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Á 88. afgreiðslufundi var tekin fyrir umsókn Kristinn Ragnarsson fyrir hönd Silfurafls ehf. sækir um leyfi til að byggja 23 íbúða fjölbýlishús. Helstu stærðir eru; 1878,4m2 og 5.608,3m3. Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag.
Afgreiðslu var frestað.

Bæjarráð hefur á fundi 18.08.2023 fallið frá forkaupsrétti á lóðum nr. 11 og 13 við Ástjörn á Selfossi.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
4. 2310067 - Eyravegur 26 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Haraldur Ingvarsson hönnunarstjóri f.h. Rekstur og fjármál ehf. sækir um leyfi til að breyta lögun á sérgeymslum ásamt sameiginlegri barnavagnageymslu.
Umsóknin var áður á dagskrá 53. fundar.
Brúttóstærðir 139,9 m2 og 398,1 m3

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við breytingu á innra skipulagi á mhl 02
Samþykkt
5. 2310068 - Eyði-Sandvík - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Jónas Hafþór Jónsson hönnuður fyrir hönd Ólaf Inga Sigurmundsson sækir um leyfi til að byggja bogahús undir búfenað.
Helstu stærðir eru; 62,2 m² og 179,2 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
6. 2310499 - Fossnes svæði 80 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ari Guðmundsson hönnunarstjóri fyrir hönd Selfossveitna sækir um leyfi til að byggja dælustöð. Helstu stærðir eru; 45,0m2 og 162,7 m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á skil á skráningartöflu. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
7. 2307228 - Hellismýri 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Valur Arnarson hönnuður fyrir hönd Byggingatækni ehf. sækir um leyfi til að byggja iðnaðarhús. Helstu stærðir eru; 458,5 m² og 2.593,2 m³.
Umsóknin var áður tekin fyrir á fundi 117 en þá synjað vegna þar sem húsið var minna en gert er ráð fyrir. Lóðarhafi hefur einnig skilað inn áætlun um tilhögun framkvæmda og nýjum aðaluppdráttum þar sem gert er ráð fyrir stærra húsi en áður.

Erindinu er synjað þar sem innsend gögn eru ekki í samræmi við lóðarblað.
Hafnað
8. 2310190 - Hellismýri 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sigurður Lúðvík Stefánsson f.h. Íslandsturna og Húsfélagsins Hellismýri 12, óskar eftir leyfi til að setja upp og festa fjarskiptaloftnet og tilheyrandi tæknibúnað á galvanhúðuðum stálrörum á austur enda byggingar í samræmi við meðfylgjandi gögn. Búnaðurinn er til að sinna farsímaþjónustu í nærumhverfinu. Tæknibúnaður mun tengjast húsrafmagni og ljósleiðaraneti í núverandi tæknirými.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
9. 1911502 - Hraunhella 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ragnar Már Ragnarsson hönnuður fyrir hönd Ingvar Jónsson sækir um leyfi til að byggja sólskála við núverandi íbúðarhús. Helstu stærðir eru; 18,3 m² & 43,8m³.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við breytingu á aðaluppdráttum.
Samþykkt
10. 2310069 - Nesbrú 5a - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Þórhallur Garðarsson hönnuður fyrir hönd Vöruvernd Ísmenn ehf. sækir um leyfi til að byggja atvinnumannvirki var áður á afgreiðslufundi númer 110. Helstu stærðir eru; 307,7 m² og 1.468,8m³.
Erindinu er frestað þar sem innsend gögn eru ekki í samræmi við athugasemdir skipulagsnefndar og ósamræmi eru í hönnunargögnum.
Frestað
11. 2310497 - Norðurbraut 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Svanur Þór Brandsson hönnuður fyrir hönd Daníels Braga Hlíðberg sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 223,0 m² og 970,1 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
12. 2310402 - Suðurbraut 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Runólfur Þór Sigurðsson hönnuður fyrir hönd Davíð Örn Daníelssonar sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 74,5 m² og 233,7 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa, Eldvarnareftirlits Árnessýslu og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
13. 2210450 - Túngata 64 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Gestur Ólafsson hönnuður fyrir hönd Ragnar Kristjáns Gestssonar sækir um leyfi til að bílgeymslu.
Helstu stærðir eru; 122 m² & 507,2m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa, eldvarnareftirlits og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna tengingar við aðveitu og fráveitu. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
14. 2310380 - Tryggvagata 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Samúel Smári Hreggviðsson hönnuður fyrir hönd Bárðar Guðmundssonar sækir um leyfi til að breyta núverandi geymslu og skrifstofu í bílskúr.
Helstu stærðir á mhl 2 er; 67,6m² & 223,5m³

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við að breyta skráningu fyrir mhl 02 úr skrifstofu yfir í bílskúr
Samþykkt
15. 2309103 - Bakkatjörn 9 - Tilkynning um breytingu á útliti glugga
Magnús Hlynur Hreiðarsson sækir um leyfi til að breyta baðherbergisglugga þannig að hæð glugga verði 40 sm í stað núverandi 120 cm. Opnanlegt fag verður fært í efri hluta gluggans.
Fyrir liggur samþykki íbúa í Bakkatjörn 10 og 11.

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við framkvæmdina.
Samþykkt
16. 2310248 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum - Nauthólar 30
Svavar Kristján Sigurðsson tilkynnir um uppsetningu smáhýsis á lóð, nær lóðarmörkum en 3 m. Fyrir liggur samþykki íbúa Nauthóla 28.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda verði smáhýsið staðsett a.m.k 0,5 m frá lóðamörkum við götu/gangstétt s.k.v. gr. 3.2 í Tæknilýsingu fyrir ný hverfi í Árborg og að öðru leyti farið að ákvæðum byggingarreglugerðar gr. 2.3.5 f og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Samþykkt
17. 2310355 - Umsagnarbeiðni - Starfsleyfi fyrir Ísbúð Huppu Eyravegi 2 Selfossi
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Ísbúð Huppu að Eyrarvegi 2 á Selfossi. Umsóknin er vegna eigendaskipta.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
18. 2310214 - Rekstrarleyfisumsógn - Eldhúsið Tryggvagötu 40
Einar Björnsson f.h. Góð stemning ehf óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Eldhúsið að Tryggvagötu 40 Selfossi.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
19. 2310362 - Rekstrarleyfisumsögn - Arnberg - Olís Selfossi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis í flokki II vegna veitinga fyrir Olíuverzlun Íslands hf. að Arnbergi.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
20. 2310356 - Rekstrarleyfisumsögn - Brúarstræti 2A - Konungskaffi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingar í flokk II E Kaffihús að Brúarstræti 2A fnr. 234-0493
Byggingarfulltrúi staðfestir að fyrirhuguð starfsemi er í samræmi við samþykkt byggingaráform og skipulagsskilmála. Lokaúttekt hefur farið fram. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica