|
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi |
|
|
| Almenn afgreiðslumál |
| 1. 2404293 - Eyravegur 42 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
| Framkvæmdin er í umfangsflokki 3 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa, skil á skráningartöflu og aðaluppdráttur lagfærður í samræmi við brunahönnunarskýrslu. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 2. 2404283 - Norðurgata 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
| Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits Árnessýslu. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa og skil á skráningartöflu. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 3. 2404282 - Umsókn um niðurrif, Hafnartún, 800 |
Byggingarheimild til niðurrifs verður gefin út að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum: - Vottorð um að eignin sé veðbandalaus verði lagt fram. - Áætlun um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs verði lögð fram. - Byggingarstjóri verði skráður á framkvæmdina. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 4. 2404287 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Björkurstekkur 52 |
Vísað til samráðsfundar mannvirkja- og umhverfissviðs.
|
| Vísað í nefnd |
|
|
|
| 5. 2404339 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi -Háengi 21 - Skjólgirðing |
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5.e og leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5. um skjólveggi og girðingar.
|
| Samþykkt |
|
|
|
| 6. 2404340 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi -Háengi 21 - Smáhýsi |
| Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5 f. og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 7. 2404365 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Háengi 21-23 |
| Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda liggur fyrir samþykki eigenda aðliggjandi lóðarhafa. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 8. 2404338 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Hraunhella 5 |
Jóna Kristín Jónsdóttir & Hilmar Hilmarsson eigendur Hraunhellu 3 og Ragnar H. Pétursson & Margrét Elísa Gunnarsdóttir eigandi Hraunhellu 7, tilkynna samþykki vegna byggingaráforma á lóðarmörkum að Hraunhellu 5 þar sem eigandi ætlar að reisa skjólvegg á milli lóða.
|
| Samþykkt |
|
|
|
| 9. 2404223 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Kjarrhólar 14 |
Vísað til samráðsfundar mannvirkja- og umhverfissviðs.
|
| Vísað í nefnd |
|
|
|
| 10. 2404335 - Stöðuleyfi - Suðurgata 9 |
| Byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á tímabilinu 26.04.2024-26.04.2025 |
| Samþykkt |
|
|
|
| 11. 2404359 - Umsagnarbeiðni - Starfsleyfi fyrir Gobbidígott matarvagn |
| Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og gerir ekki athugasemd við útgáfu tímabundins starfsleyfis, sem skal skilyrt við hámark 6 mánuði, þ.e. frá 2.5.2024-2.10.2024. |
| Samþykkt |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 |