Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 135

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
10.07.2024 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Halldór Ásgeirsson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2406049 - Brenna 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnunarstjóri fyrir hönd Rakel Ýr Gunnlaugsdóttur sækir um leyfi til að byggja ris ofan á núverandi hús.
Helstu stærðir eru; 68,2m² & 177,5m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa og skil á skráningartöflu. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
2. 2407075 - Byggðarhorn Búgarður 54 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnunarstjóri fyrir hönd Hanne Oustad Smidesang sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu.
Helstu stærðir eru; 21m² & 58,8m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa og skil á skráningartöflu. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
3. 2407101 - Hvanneyri - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kristján Andrésson hönnunarstjóri fyrir hönd Valborgu Valgeirsdóttur sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 91,2m² og 274,9 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr.byggingarreglugerðar. Grenndarkynna skal fyrir eigendum að liggjandi lóða.byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu grenndarkynningar. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
4. 1705419 - Byggingarleyfisumsókn - Heiðavegur 5
Uppfærður aðaluppdáttur er lagður fram sem sýnir breytingu á bílskúr varðandi glugga og hurðir
Byggingarfulltrúi samþykkir breytta uppdrætti með fyrirvara á að uppdrátturinn verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa.
Samþykkt
5. 2407074 - Kumbaravogur 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnunarstjóri fyrir hönd Kumbaravog ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús.
Helstu stærðir eru; 337,5m² og 1280,4 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
6. 2406292 - Miðstræti 7-9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hákon Ingi Sveinbjörnsson hönnuður fyrir hönd Sigtún þróunarfélags ehf. sækir um leyfi til að byggja mannvirki með verslun/þjónustu, íbúðir ásamt bílakjallara. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 134 og var frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Helstu stærðir eru; 2.521,1m2 og 7.432,8m3

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um jákvæða umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands auk Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
7. 2407056 - Selfoss VI - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ágúst Hafsteinsson hönnunarstjóri fyrir hönd Ágústs Þórs Bragasonar sækir um leyfi til að byggja gróðurhús.
Helstu stærðir eru; 25m²

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á uppfærðum aðaluppdrætti. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa og skil á skráningartöflu. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
8. 2406367 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Lén
Ramuné Jukneviciené tilkynnir um byggingaráform varðandi smáhýsi á lóð sinni.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda verði farið að ákvæðum byggingarreglugerðar gr. 2.3.5 f og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Samþykkt
9. 2407034 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Yoga, meðhöndlun og nuddstofu að Hellismýri 14
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Jónda og Göggu slf. vegna reksturs Yoga stöðvar að Hellismýri 14

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
10. 2407035 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Tjaldsvæði að Suðurhólum fyrir Kótelletuna 2024
Heilbrigðiseftirlir Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir tjaldsvæðið við Suðurhóla.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica