Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 122

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
20.12.2023 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra,
Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2305190 - Eyði-Mörk Geitanes - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðmundur Hjaltason hönnuður fyrir hönd Fasteignafélag Árborgar slf. sækir um leyfi til að byggja hreinsistöð.
Helstu stærðir eru; 550,1 m² og 3234,5 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur er lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
2. 2209032 - Fagravík 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja 27 íbúða fjölbýlishús. Var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 118 og var hafnað vegna þess að framkvæmdin var ekki í samræmi við deiliskipulag.
Helstu stærðir eru; 2544,3 m2 og 7579,0 m3

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa, Eldvarnareftirlit Árnessýslu og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
3. 2209031 - Fagravík 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja 27 íbúða fjölbýlishús. Var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 118 og var hafnað vegna þess að framkvæmdin var ekki í samræmi við deiliskipulag.
Helstu stærðir eru; 2544,3 m2 og 7279,0 m3.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa, Eldvarnareftirlit Árnessýslu og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
4. 2009543 - Fagridalur - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sigurður Unnar Sigurðsson hönnuður fyrir hönd Valdimars Sigurðar Þórissonar sækir um leyfi til að breyta hluta húss úr hesthúsi í íbúð. Var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 49 og var vísað til skipulagsnefndar.
Helstu stærðir eru; 166,8 m² og 675,3 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við aðalskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
5. 2311044 - Fossnes 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Vigfús Halldórsson hönnunarstjóri hönnuður fyrir hönd GT ehf. sækir um leyfi til að setja upp hleðsluhús og auglýsingaskjá.
Helstu stærðir : 33,3m² og 76,2m³

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja og umhverfissviðs varðandi staðsetningu ljósaskiltis og hleðsluhúss. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
6. 2312289 - Fossnes 7b - Umsókn um byggingarleyfi
Guðmundur Hjaltason hönnuður fyrir hönd HS Veitna. sækir um leyfi til að byggja spennistöð.
Helstu stærðir eru; 9,5 m² og 28,4 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja og umhverfissviðs varðandi staðsetningu spennustöðvar. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
7. 2312211 - Fossvík 2-8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja raðhús.
Helstu stærðir eru; 423,4 m2 og 1.809,3 m3.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
8. 2312270 - Fossvík 10-14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja raðhús.
Helstu stærðir eru; 299,7 m2 og 1.244,4m3.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
9. 2312210 - Hamravík 13-21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja raðhús.
Helstu stærðir eru; 501,8 m2 og 2.126,7 m3.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
10. 2311421 - Litla-Hraun fangelsi - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Helena Björgvinsdóttir hönnuður fyrir hönd Dómsmálaráðuneytis sækir um leyfi til að byggja bráðabirgðaheimsóknarrými.
Helstu stærðir eru; 59 m² og 159,4 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits Árnessýslu. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
11. 2311417 - Norðurbraut 23 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Emil Þór Guðmundsson hönnuður fyrir hönd Bjarka Fannars Magnússonar sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 44 m² og 158,4 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa, Eldvarnareftirlits Árnessýslu og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
12. 2312043 - Stjörnusteinar 14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kjartan Sigurbjartsson hönnuður fyrir hönd Viðar Erlingssonar sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu og breyta útliti húss.
Helstu stærðir viðbyggingar; 19,2 m² og 87,3 m³.

Erindinu er frestað.
Frestað
13. 2311019 - Suðurgata 14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sigurður Unnar Sigurðsson hönnuður fyrir hönd Maríu Auðar Steingrímsdóttur sækir um leyfi til að byggja stakstæða byggingu sem verður notuð til matvælaframleiðslu.
Helstu stærðir eru; 31,7 m² og 99,1 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er ekki í samræmi við deiliskipulag.
Erindinu er hafnað.

Hafnað
14. 2312220 - Suðurgata 18 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Valgeir Berg Steindórsson hönnuður fyrir hönd Jarðverk sækir um leyfi til að byggja Einbýli & tækjageymslu.
Helstu stærðir eru;
Einbýli 163,7 m² og 478,9 m³
Tækjageymsla 427,5m² og 1519,7 m³.

Erindinu er synjað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
15. 2311423 - Stöðuleyfi - Víkurheiði 2
Adolf Hafsteinn Þórsson óskar eftir stöðuleyfi fyrir sumarhús í byggingu að Víkurheiði 2 á tímabilinu 15.11.2023-30.04.2024.
Samþykkt er að veita stöðuleyfi til 30.04.2024 vegna sumarhúss í byggingu.
Samþykkt
16. 2312277 - Umsagnarbeiðni - Endurnýjun starfsleyfis fyrir Bónus Selfossi
Heilbrigðiseftirlir Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Bónus að Larsenstræti 5.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
17. 2312276 - Umsagnarbeiðni - Starfsleyfi fyrir Byrja ehf
Heilbrigðiseftirlir Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Byrja ehf að Austurvegi 1-5.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
18. 2312168 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Nýjabæ 6 vegna reksturs gististaðar í flokki II
Heilbrigðiseftirlir Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Studio apartment Nýjabæ 6 Selfossi 801.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur eignarými 0102 í matshluta 1 staðist öryggisúttekt þar af leiðandi gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
19. 2312167 - Rekstrarleyfisumsögn - Nýibær 6 umsókn um breytingu á rekstarleyfi til stækkunar
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis í flokki II fyrir Nyibær studio apartment til sölu gistingar að Nýabæ lóð 6 Selfoss 801.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur eignarými 0103 í matshluta 1 staðist öryggisúttekt þar af leiðandi gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt
20. 2312217 - Rekstrarleyfisumsögn - Eyravegur 32 - Hamborgarabúlla Tómasar
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis í flokki II fyrir veitingar að Eyrarvegi 32.

Byggingarfulltrúi getur ekki gefið jákvæða umsögn þar sem að öryggis- og eða lokaúttekt hefur ekki farið fram.
Hafnað
21. 2312260 - Rekstrarleyfisumsögn - Austurvegur 1-5 - Byrja
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis í flokki II fyrir veitingar að Austurvegi 1-5.

Byggingarfulltrúi staðfestir að fyrirhuguð starfsemi er í samræmi við samþykkt byggingaráform og skipulagsskilmála. Lokaúttekt hefur farið fram. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica