Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 131

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
15.05.2024 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Þórarinn Magnússon f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2403136 - Ástjörn 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kristinn Ragnarsson fyrir hönd Fagradals ehf. sækir um leyfi til að byggja bílgeymslu mhl 03 fyrir 5 bíla að Ástjörn 11. Helstu stærðir eru; 157,5m2 og 608,7m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að skráningartöflu sé skilað inn. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
2. 2405019 - Suðurbraut 33 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðmundur Gunnarsson fyrir hönd Mána Barkarsonar sækir um leyfi til að byggja tækjaskemmu.
Helstu stærðir eru; 260m2 og 1.508m3

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag.
Erindinu er hafnað vegna ófullnægjandi gagna.
Hafnað
3. 2405157 - Víkurheiði 2 - Tilkynningarskyld mannvirkjagerð undanþegin byggingarheimild og -leyfi
Leifur Örn Leifsson f.h. Set ehf. tilkynnir um uppsetningu á tveimur tjaldhýsum 360m² hvor sem á að vera staðsett á Víkurheiði 2.
Umrædd framkvæmd fellur undir lið 2.3.6. staflið b í byggingarreglugerð 112/2012.
Byggingarfulltrúi samþykkir tilkynninguna með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður.
Samþykkt
4. 2405068 - Stekkjarland 7 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum
Linda Ozola tilkynnir samþykki vegna áforma um að reisa smáhýsi á lóð sinni nær lóðamörkum en 3 m. Fyrir liggur samþykki eiganda Stekkjarlands 9.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda liggur fyrir
samþykki eigenda aðliggjandi lóðarhafa.
Samþykkt
5. 2405066 - Stöðuleyfi - Larsenstræti 6
Atli Lillendahl óskar eftir stöðuleyfi fyrir matsöluvagni að Larsenstræti 6.
Fyrir liggur samþykki húseiganda fyrir rekstrinum.

Byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir matarvagninn frá 02.05.2024-02.10.2024.
Samþykkt
6. 2405135 - Umsagnarbeiðni - Starfsleyfi fyrir Leikskólann Árbæ
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Hjallastefnunar ehf. vegna reksturs Leikskólans Árbæ
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
7. 2405161 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir þjónustuíbúðir í Nauthaga 2
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir þjónustuíbúða fyrir fatlaða að Nauthaga 2
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
8. 2405110 - Umsagnarbeiðni - Rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II - Hulduhóll 27
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis í
flokki II fyrir gististað að Hulduhól 27

Samkvæmt breytingu á lögum nr 85/2007 er ekki heimilt að vera með gististað í íbúðarhúsnæði.
Hafnað

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica