Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 110

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
01.02.2023 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi
Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi tók þátt í fundinum um fjarfundarbúnað.


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2301060 - Norðurgata 14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kjartan Sigurbjartsson hönnuður fyrir hönd Kristinu Valkovicova sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 179,2m2 og 684,3m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
Norðurgata 14 - mhl 01 A mótt 09.01.2023.pdf
2. 2301061 - Norðurgata 14 Skemma - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kjartan Sigurbjartsson hönnuður fyrir hönd Kristinu Valkovicova sækir um leyfi til að byggja skemmu. Helstu stærðir eru; 420,0 m² og 2174,7 m³.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
Norðurgata 14 - mhl 02 A mótt 09.01.2023.pdf
3. 2301132 - Bjarmaland - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Samúel Smári Hreggviðsson hönnuður fyrir hönd Huga Freys Valssonar sækir um leyfi til að byggja hæð ofan á hluta eldra húss. Helstu stærðir eru; 68,8 m² og 238,1 m³.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1, deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Vísað til skipulagsnefndar.

Vísað í nefnd
Hönnuður - umsókn um byggingaráform, byggingarheimild og byggingarleyfi.pdf
Bjarmaland A mótt 12.01.2023.pdf
4. 2211276 - Eyrargata 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Brynhildur Sólveigardóttir hönnuður fyrir hönd Trausta Þórs Sverrissonar sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 226,0 m² og 778,2 m³.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og hefur verið grenndarkynnt. Engar athugasemdir bárust.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
Eyrargata 15. mótt.17.11.2022.pdf
5. 2301183 - Eyravegur 65/Gagnheiði 32 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðjón Þórir Sigfússon hönnuður fyrir hönd Hvítasunnukirkjunnar á Selfossi sækir um leyfi til breytinga innan húss og utan.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Skýra þarf betur hvaða breytingar fyrirhugað er að gera á húsinu.
Frestað
Eyravegur 65_Gagnheið 32 A mótt 17.01.2023.pdf
6. 2301292 - Nesbrú 5a - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Þórhallur Garðarsson hönnuður fyrir hönd Vöruvernd Ísmenn ehf. sækir um leyfi til að byggja atvinnumannvirki. Helstu stærðir eru; 156,5 m² og 746,9m³.
Deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Vísað til skipulagsnefndar.
Vísað í nefnd
Nesbrú 5a A mótt 24.01.2023.pdf
7. 2301340 - Eystri-Grund - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sæmundur Eiríksson hönnuður fyrir hönd Sævars Ástmundssonar sækir um leyfi til að byggja útihús/vélageymslu. Helstu stærðir eru; 170,0 m² og 659,7 m³.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Fyrirhugað er að byggja við eldra hús, hlöðu.
Ósamræmi er í gögnum. Leiðrétta þarf upplýsingar í Landeignaskrá.

Frestað
Eystri Grund A mótt 26.01.2023.pdf
8200-GR-S0001.pdf
8. 2301349 - Eyði Sandvík land 1, Beykiskógar - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Ingimundar Sigurmundssonar sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 453,6 m² og 1.885,8 m³.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag Beykiskóga. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
Eyði Sandvík land 1 A mótt 27.01.2022.pdf
9. 2301350 - Árvegur - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sigríður Magnúsdóttir hönnuður fyrir hönd Ríkiseigna sækir um leyfi fyrir tímabundnum breytingum innanhús og á gluggum.
Fyrirhugað er að innrétta tvö fundarherbergi við tengigang og þrjár aflokaðar vinnustöðvar við stiga- og lyftuhús. Breytingar á suðurglugga við aðalinngang, rafdrifið opnanlegt fag sett í hvort fundarherbergi og fylling á hæðarskilum.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
Hönnuður - umsókn um byggingaráform, byggingarheimild og byggingarleyfi.pdf
Fylgiskjal 1-Árvegur-27012023.pdf
Fylgiskjal 2-Arvegur-27012023.pdf
3304-31020-Árvegur-27012023-brunastimpill.pdf
10. 2301359 - Litla-Hraun fangelsi - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Heba Hertervig hönnuður fyrir hönd Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna sækir um leyfi til breytinga innanhúss á matshluta 01 og 07 ( hús 2 og 5) á Litla Hrauni. Rifin er viðbygging við matshluta 1 og húsið fært nær upprunalegu útliti.
Um er að ræða fyrsta áfanga í gagngerum endurbótum og uppbyggingu á Litla-Hrauni.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Gera þarf betur grein fyrir brunavörnum og algildri hönnun.

Frestað
11. 2301247 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Gráhella 34
Leifur Guðmundsson og Sigríður Skúladóttir tilkynna um samþykki nágranna að Gráhellu 15 vegna áforma um að byggja smáhýsi á lóð sinni og óska eftir samþykki Sveitarfélagsins Árborgar.
Vísað til samráðsfundar skipulags- og byggingardeildar og mannvirkja- og umhverfissviðs.
Vísað í nefnd
Samþykki nágranna Gráhella 15.pdf
12. 2301302 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Hrafnhólar 17-19
Kristófer Örn Ásgrímsson leitar eftir samþykki Sveitarfélagsins Árborgar vegna áforma um að reisa smáhýsi á lóð sinni nær lóðamörkum en 3 m.
Vísað til samráðsfundar skipulags- og byggingardeilar og mannvirkja- og umhverfissviðs.
Vísað í nefnd
Umsækjandi (eigandi - einstaklingur/ fyrirtæki) - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi.pdf
A8D265F2-E20D-4BC3-A2F2-D79AB2940C15.pdf
13. 2301148 - Stöðuleyfi - Hrísmýri 7
Bílanaust ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir gám til vörugeymslu við verslun sína. Sótt er um stöðuleyfi fyrir tímabilið 01.01.2023 - 01.01.2028.
Skv. byggingarreglugerð gr. 2.6.1 skulu stöðuleyfi veitt til 12 mánaða nema ákvæði skipulags mæli fyrir um annað.
Samþykkt að veita stöðuleyfi 01.01.2023 - 31.12.2023.

Samþykkt
Umsókn um stöðuleyfi.pdf
14. 2301134 - Rekstrarleyfisumsögn - Eyravegur 1 - Röstí
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis í flokki III fyrir Röstí Eyravegi 1 Selfossi.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar sbr. útgefið byggingarleyfi og að húsið hefur staðist öryggisúttekt.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
Umsagnarbeiðni-2023000019.pdf
Teikningar af útiveitingaleyfi (PDF).pdf
Nákvæm teikning af húsnæði.pdf
Umsókn um nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingar í Eyravegur 1 fnr 252-0458 flokk III A-Veitingahús til umsagnaraðila.pdf
15. 2301144 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Litla-Hraun
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir fangelsið Litla-Hraun.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar og gerir ekki athugasemdir við útgáfu/endurnýjun starfsleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica