Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 133

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
12.06.2024 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Halldór Ásgeirsson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2406049 - Brenna 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnunarstjóri fyrir hönd Rakel Ýr Gunnlaugsdóttur sækir um leyfi til að byggja ris ofan á núverandi hús.
Helstu stærðir eru; 68,2m² & 177,5m³.

Erindinu vísað til skipulagsnefndar.
Vísað í nefnd
2. 2405191 - Litla-kot Byggðarhorn Búgarður 54 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnunarstjóri fyrir hönd Hanne Oustad Smidesang sækir um leyfi til að byggja einbýlishús.
Helstu stærðir eru; 42,0m² og 117,6 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa og skil á skráningartöflu. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
3. 2307217 - Eyravegur 26 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Haraldur Ingvarsson hönnuður fyrir hönd Rekstur og fjármál ehf. sækir um leyfi til að byggja 2 hæðir ofan á núverandi húsnæði og bæta þannig við 16 íbúðum. Erindinu var hafnað á 117. afgreiðslufundi og frestað á 123. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem framkvæmdin var ekki í samræmi við deiliskipulag og gögn þóttu ófullkomin. Lagðir hafa verið fram endurbættir aðaluppdrættir.
Helstu stærðir á stækkun eru; 586,9 m² og 1.549,0 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að samþykki meðeigenda verði lagt fram, aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Samþykki meðeigenda, Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
4. 2405271 - Fossvegur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Rafael Cao Romero Millan hönnunarstjóri fyrir hönd Sveitarfélagsins Árborg tilkynnir um áform um byggingu útiskála á leikskólalóð við Fossveg 1, á Selfossi, skv. meðfylgjandi gögnum. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 132 og var vísað til skipulagsnefndar.
Byggingarfulltrúi samþykkir tilkynningu um áform byggingu útiskála skv. gr. 2.3.6 í gildandi byggingarreglugerð.
Samþykkt
5. 2405272 - Litla Sandvík land 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hrafnkell Már Stefánsson hönnunarstjóri fyrir hönd Stefáns Már Stefánssonar sækir um leyfi til að byggja bílgeymslu. Erindinu var hafnað á 132. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 132 vegna ófullnægjandi gagna. Borist hafa endurnýjaðir aðaluppdrættir.
Helstu stærðir eru; 31,8m² og 119,4 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa og skil á skráningartöflu. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
6. 2406065 - Norðurbraut 34 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Árni Gunnar Kristjánsson hönnunarstjóri fyrir hönd Magnús Inga Mássonar sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 140,2m² og 644,7 m³.

Erindinu er frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
7. 2406070 - Norðurleið 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kristján Andrésson hönnunarstjóri fyrir hönd Lindu Þorvaldsdóttur sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 91,2m² og 274,9 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
8. 2405019 - Suðurbraut 33 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðmundur Gunnarsson fyrir hönd Mána Barkarsonar sækir um leyfi til að byggja tækjaskemmu. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 131 og var hafnað vegna ófullnægjandi gagna.
Helstu stærðir eru; 260m2 og 1.508m3

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa og skil á skráningartöflu. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
9. 2406064 - Umsókn um niðurrif, Kirkjuvegur 13, 800
Stræti fasteignafélag ehf. sækir um leyfi til að rífa bílskúr að Kirkjuvegi 13.
Byggingarheimild til niðurrifs verður gefin út að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
- Vottorð um að eignin sé veðbandalaus verði lagt fram.
- Áætlun um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs verði lögð fram.
- Byggingarstjóri verði skráður á framkvæmdina.
Samþykkt
10. 2406015 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum - Starengi 17
Gunnlaugur Óskar Ágústsson & Anna Heiður Heiðarsdóttir eigendur Starengi 17 og Helga S. Sveinsdóttir & Sverrir Ágústsson eigendur að Dælengi 20 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðingar. Eigendur Starengi 17 leita einnig samþykkis Sveitarfélagsins Árborg vegna áformana.
Vísað til samráðsfundar Mannvirkja og umhverfissviðs.
Vísað í nefnd
11. 2406086 - Stöðuleyfi - Búðarstígur 7
Óðinn Kalevi Andersen f.h. Sveitarfélagsins Árborg óskar eftir stöðuleyfi vegna 20 feta gáms sem notaður verður sem bráðabirgðageymsla fyrir búnað tengdum íþróttastarfsemi í íþróttahúsinu Stað.
Byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir 20 feta gám tímabilið 01.08.2024-01.08.2025.
Samþykkt
12. 2405365 - Stöðuleyfi - Stóra-Sandvík 1 Lóð
Ari Páll Ögmundsson f.h. Búhnykkur sf. sækir um stöðuleyfi fyrir einum 40 feta gám sem staðsettur verður á vestur gafli hlöðu, fyrir tímabilið 01.06.2024-01.06.2025.
Byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir 40 feta gám tímabilið 01.06.2024-01.06.2025.
Samþykkt
13. 2406014 - Umsókn um stöðuleyfi - Tryggvagarður
Ólafur Rafnar Ólafsson f.h. Sveitarfélagsins Árborgar óskar eftir stöðuleyfi fyrir 3 söluskúra, tímabilið 22.06.2024-31.08.2024
Byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir söluskúra tímabilið 22.06.2024-31.08.2024.
Samþykkt
14. 2406107 - Tryggvagata 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ingvar Bjarnason hönnunarsjóri f.h. Byko sækir um stöðuleyfi fyrir 20 m2 gestahús sem verður smíðað af nemendum á húsasmíðabraut í Fjölbrautaskóla Suðurlands skólaárið 2024-2025 undir handleiðslu kennara/hússmíðameistara. Húsið verður smíðað í porti verknámshúss skólans (Hamri) yfir skólaárið og verður síðan flutt af staðnum sumarið 2025.
Umfangsflokkur 1.
Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa og skil á skráningartöflu. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
15. 2311236 - Smáhýsi á lóð - Tjaldhólar 46
Byggingarfulltrúa hafa borist athugasemdir vegna smáhýsis á lóð nr. 46 sem ekki er sett upp í samræmi við gr. 2.3.5 í byggingarreglugerð.
Byggingarfulltrúi sendi eiganda nr. 46 bréf dags. 17.11.2023 og aftur 27.05.2024 þar sem gefinn er frestur til andmæla til 08.06.2024 og upplýst að ákvörðun um hvort dagsektir verði lagðar á verði tekin þann 12.06.2024.

Byggingarfulltrúi samþykkir í samræmi við gr. 2.9.2.í gildandi byggingarreglugerð að leggja á dagsektir kr. 30.000,- frá og með birtingu.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica