1. 2402334 - Austurvegur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kjartan Sigurbjartsson hönnuður fyrir hönd Árfoss ehf. sækir um leyfi til að byggja verslunar og skrifstofu hús. Helstu stærðir eru; 1.345,5m2 og 4.637,1m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er ekki í samræmi við deiliskipulag. Erindinu er hafnað.
Hafnað
2. 2402260 - Hafnargata 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Vigfús Halldórsson hönnuður fyrir hönd GT Group ehf. sækir um leyfi til að breyta núverandi listamannastofu í tvíbýli var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 125. Helstu stærðir eru; 184m2 og 798,6m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Erindinu er frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
3. 2403042 - Hellismýri 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Valur Arnarsson hönnuður fyrir hönd Álfag ehf. sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu við iðnaðarhús. Helstu stærðir eru; 228,0m2 og 1.326,3m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa og skil á skráningartöflu. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
4. 2402368 - Miðstræti 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hákon Ingi Sveinbjörnsson hönnuður fyrir hönd Sigtún þróunarfélags ehf. sækir um leyfi til að byggja tvíbýli. Helstu stærðir eru; 239,4m2 og 708,8m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Erindinu er frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
5. 2402367 - Miðstræti 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hákon Ingi Sveinbjörnsson hönnuður fyrir hönd Sigtún þróunarfélags ehf. sækir um leyfi til að byggja blandað mannvirki á tveimur hæðum. Helstu stærðir eru; 201,1m2 og 756,9m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Erindinu er frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
6. 2402363 - Túngata 46 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Einar Inga Jónssonar sækir um leyfi til að rífa núverandi viðbyggingu (27m²) og búa til nýja viðbyggingu sem fellur betur að byggingarstíl hússins. Helstu stærðir eru; 156,7m2 og 334,4m3