Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 160

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
19.02.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista,
Brynhildur Jónsdóttir varamaður, D-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, S-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri
Sveinn Ægir Birgisson, D-lista boðaði forföll og kemur Brynhildur Jónsdóttir, D-lista inn á fundinn í hans stað.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2506051 - Útboð á akstri fyrir Sveitarfélagið Árborg
Minnisblaði innkaupastjóra, dags. 13. febrúar um útboð á akstri fyrir fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Árborgar, ásamt útboðskröfu.
Bæjarráð samþykkir útboðskröfur og að farið verði í útboð á akstursþjónustu fyrir Sveitarfélagið Árborg.
Samþykkt
2. 2602146 - Framlag Árborgar til TÁ skólaárið 2026
Kostnaðarskipting Tónlistarskóla Árnesinga fyrir árið 2026.
Lagt fram til kynningar.
Hlynur Geir Hjartarson kemur inn á fundinn kl. 8:45
3. 2512321 - Þjónustusamningur - Golfklúbbur Selfoss 2026 - 2030
Minnisblað bæjarstjóra dags. 9. febrúar, ásamt drögum að þjónustusamningi við Golfklúbb Selfoss.

Málinu var frestað 159. fundi.

Hlynur Geir Hjartarson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Selfoss kemur inn á fundinn.

Hlynur Geir Hjartarson kemur inn á fundinn og kynnir starfsemi Golfklúbbs Selfoss og svarar fyrirspurnum. Bæjarráð þakkar Hlyni Geir fyrir kynninguna.

Bæjarráð samþykkir þjónustusamninginn. Jafnframt er bæjarstjóra veitt umboð til að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins. Bæjarstjóra er einnig falið að láta undirbúa lánaskjöl vegna fjármögnunar á uppbyggingu golfvallarins og leggja fram til afgreiðslu bæjarstjórnar. Með breytingu á fjármögnun uppbyggingar golfvallarins falla út áætlaðar greiðslur til Golfklúbbs Selfoss úr eldri samningum. Ekki er þörf á viðauka þar sem gert er ráð fyrir samningnum og lánafyrirkomulagi í fjárhagsáætlun Árborgar 2026.
Samþykkt
Hlynur Geir Hjartarson víkur af fundinum kl. 9:45
4. 2602168 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa S-lista - Uppsetning á fjárhagsáætlun ársins 2026
Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa S-lista dags. 15. febrúar, um kostnað vegna ráðningu verktaka til þess að setja upplýsingar úr fjárhagsáætlun á annað form en áður hefur verið.

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra, dags. 16. febrúar vegna fyrirspurnar um kostnað við greinargerð fjárhagsáætlunar 2026.
Fram kom að kostnaðurinn við greinargerðina hafi rúmast innan fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2025. Bæjarfulltrúi S-lista þakkar fyrir framkomin svör.
Fyrirspurn bæjarfulltrúa S-lista - Uppsetning á fjárhagsáætlun ársins 2026.pdf
5. 2602169 - Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa S-lista - biðlistar hjá sálfræðingum og talmeinafræðingum hjá Árborg
Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa S-lista, dags. 15. febrúar um biðlista eftir greiningu hjá sálfræðingum og talmeinafræðingum.
Minnisblað deildarstjóra skólaþjónustu dags. 18. febrúar lagt fram til kynningar. Bæjarfulltrúi S-lista þakkar fyrir greinagóð svör.
Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa S-lista - biðlistar hjá sálfræðingum og talmeinafræðingum hjá Árborg.pdf
6. 2602149 - Tilnefningar eða framboð í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga 2026
Erindi frá tilnefningarnefnd Lánasjóðs sveitarfélaga, dags. 12. febrúar, þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga. Áformað er að halda aðalfund Lánasjóðsins 20. mars nk. á Grand Hótel Reykjavík. Frestur til að skila framboðum eða tilnefningum til kjörnefndar rennur út kl. 12 á hádegi föstudaginn 27. febrúar.
Lagt fram til kynningar.
Scan_Óttar Guðjónsson_202602121013.pdf
Fundargerðir
7. 2602002F - Almannavarnarráð - 15
15. fundur haldinn 4. febrúar.
8. 2602010F - Ungmennaráð - 12/2025
12. fundur haldinn 9. febrúar
9. 2602008F - Stjórn Leigubústaða Árborgar ses - 28
28. fundur haldinn 12. febrúar.
Fundargerðir til kynningar
10. 2301137 - Fundargerðir stjórnar Arnardrangs hses 2022-2026
25. fundur haldinn 3. febrúar.
Lagt fram til kynningar.
25. stjórnarfundur Arnardrangs.pdf
11. 2602155 - Fundargerðir stjórnar Bergrisans bs 2026
91. fundur haldinn 3. febrúar.
Lagt fram til kynningar.
91. stjórnarfundur Bergrisans.pdf
12. 2601211 - Fundargerðir stjórnar SASS 2026
633. fundur haldinn 6. febrúar.
Lagt fram til kynningar.
633. fundargerð SASS_060226_undirrituð.pdf
13. 2602100 - Fundargerðir stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga 2026
215. fundur haldinn 10. febrúar.
Lagt fram til kynningar.
Fundur 215 - 10.2.2026.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica