Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 137

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
04.09.2024 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Halldór Ásgeirsson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2302051 - Austurvegur 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Áður á dagskrá fundar nr. 111 og þá vísað til skipulagsnefndar. Deiliskipulagsbreyting var samþykkt 08.04.2024. Niðurrif eldra húss var samþykkt 04.06.24 og hefur húsið verið rifið.
Hönnnarstjóri sendi inn uppfærða uppdrætti 01.09.2024.

Hönnun hefur verið samræmd deiliskipulagi og tekið tillit til athugasemda eldvarnareftirlits.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn mannvirkja og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
2. 2409038 - Norðurbraut 14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lárus Kristinn Ragnarsson hönnunarstjóri fyrir hönd Dima Elevators ehf. sækir um leyfi til að byggja tækjaskemmu.
Helstu stærðir eru; 450m² & 2397m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
3. 2409021 - Suðurbraut 35 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sigurður Þorvarðarson hönnunarstjóri fyrir hönd Laufey Hönnu Tómasardóttur sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 77,3m² & 256,6m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
4. 2408268 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum - Bleikjulækur 8
Dagný Sif Jónsdóttir tilkynnir um samþykki nágranna að Bleikjulæk 10 fyrir að reisa skjólvegg allt að 1,8 m að hæð nær lóðarmörkum en 3 m. Einnig er tilkynnt um uppsetningu skjólveggja allt að 1,8 m að hæð vestan húss aðliggjandi sameiginlegs aðkomustígs sem kvöð er um vegna aðkomu að baklóðum vestan húss.


Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við uppsetningu skjólveggjar aðliggjandi lóð nr. 10 skv. samkomulagi nágranna enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingarreglugerðar gr. 2.3.5 e og leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5. Skjólveggur við aðkomustíg er um 2 m frá lóðamörkum og fellur því undir undanþáguákvæði reglugerðar.
Afgreiðslu- og umsýslugjald fyrir smáhýsi, skjólveggi og sólpalla er kr. 22.000,- og verður innheimt af fjármálasviði Árborgar.
Samþykkt
Tilkynning um samþykki á byggingaráformum, Bleikjulækur 8.pdf
5. 2409001 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Norðurgata 10
Eggert Guðmundsson tilkynnir um byggingu þaks yfir þegar byggða verönd.
Heildarstærð yfirbyggingar 27,8 m2 og 89,5 m3.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt því að skráningartöflu verði skilað inn. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Gjald skv. gjaldskrá er kr. 185.000,-
Samþykkt
Norðurgata 10-yfirbygging á verönd ágúst 2024-.pdf
6. 2409020 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum - Björkurstekkur 25 - Smáhýsi
Bjarnheiður Hauksdóttir tilkynnir um samþykki nágranna að Björkurstekk 23 um að smáhýsi verði reist nær lóðarmörkum en 3 m.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda verði smáhýsið staðsett a.m.k 0,5 m frá lóðamörkum við götu/gangstétt s.k.v. gr. 3.2 í Tæknilýsingu fyrir ný hverfi í Árborg og að öðru leyti farið að ákvæðum byggingarreglugerðar gr. 2.3.5 f og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Afgreiðslu- og umsýslugjald fyrir smáhýsi, skjólveggi og sólpalla er kr. 22.000,- og verður innheimt af fjármálasviði Árborgar.
Samþykkt
Tilkynning um samþykki á byggingaráformum - Björkurstekkur 25.pdf
7. 2409025 - Björkurstekkur 52 - Smáhýsi - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum
Guðlaugur Stefánsson tilkynnir um samþykki nágranna að Björkurstekk 54, Björkurstekk 60 og Björkurstekk 62 um eftirfarandi:
a. smáhýsi verði reist nær lóðarmörkum en 3 m.
b. Skjólveggur h=1,8 m verði reistur á mörkum nr 52 og 62. Veggurinn verður í sameign beggja aðila.
c. Sorpsýli verði reist við lóð nr. 54.
d. Smáhýsi verði reist í NA horni lóðarinnar, um 1,5m frá lóðum nr 54,60,og 62.
e. Bílaplan sé steypt í lóðarmörk

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda verði smáhýsið staðsett a.m.k 0,5 m frá lóðamörkum við götu/gangstétt s.k.v. gr. 3.2 í Tæknilýsingu fyrir ný hverfi í Árborg og að öðru leyti farið að ákvæðum byggingarreglugerðar gr. 2.3.5 f og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Afgreiðslu- og umsýslugjald fyrir smáhýsi, skjólveggi og sólpalla er kr. 22.000,- og verður innheimt af fjármálasviði Árborgar.
Samþykkt
Tilkynning um samþ. á byggingaráformum, smáhýsi, samþ. Björkustekkur 54.pdf
Tilkynning um samþ. á byggingaráformum, smáhýsi, samþ. Björkustekkur 60.pdf
8. 2409022 - Rekstrarleyfisumsögn - Litla húsið, Lækjaskógur
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna umsóknar Pegani ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokk II, Tegund: C Minna gistiheimili.
Heiti staðar: Litla húsið, Lækjaskógur, 801 Selfossi. Áformaður hámarksfjöldi gesta er 2.

Bygginarfulltrúi staðfestir að
a. starfsemin sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála,
b. að lokaúttekt hafi farið fram á húsnæðinu
Bygginarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu stafsleyfis.
Samþykkt
9. 2408234 - Norðurgata 33 - Umsókn um stöðuleyfi
Guðveigur Þór Steinarsson óskar eftir stöðuleyfi 20 ft og 10 ft gáma á lóðinni. Fyrir liggur samþykki lóðarhafa.
Ekki liggur fyrir umsókn um byggingarleyfi á umræddri lóð þar með er erindinu hafnað.
Hafnað

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica