|
| Almenn afgreiðslumál |
| 1. 21041858 - Austurvegur 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
Eigendur hússins hafa frá árinu 2017 sótt um ýmsar breytingar á húsinu sem flestar snúa að breyttri notkun. Mismikil samstaða hefur verið meðal eigenda um einstakar breytingar. Á fundi 85 var samþykkt ósk um að fjölga eignarhlutum á þriðju hæð úr einum í tvo og samþykkt ósk um breytta notkun 2. og 3. hæðar úr skrifstofum í íbúðir. Byggingarfulltrúi afturkallaði þessa samþykkt 13.07.2021 þar sem hann taldi að upplýsingar um samþykki meðeigenda hafi ekki verið fullnægjandi. Ákvörðun um afturköllun var kærð til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Niðurstaða Úrskurðarnefndar "Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Árborgar frá 13. júlí 2021 að því er varðar afturköllun fyrri ákvörðunar hans frá 28. apríl s.á. um að samþykkja byggingarleyfi fyrir breyttri notkun séreignarhluta kærenda í fjöleignarhúsinu að Austurvegi 38. Að öðru leyti stendur ákvörðunin óröskuð." Með samkomulagi eigenda frá 23.04.2024 er fallist á fjölgun eignarhluta á 3. hæð. Byggingarfulltrúi ítrekar samþykkt frá fundi 85 varðandi fjölgun eignarhluta og breytta notkun með fyrirvara um að uppdráttur sé leiðréttur í samræmi vð athugasemdir eldvarnareftirlits um fjölda reykskynjara og handslökkvitækja. Byggingarfulltrúi víkur frá kröfu um lyftu með tilvísun í eftirfarandi í tölulið 5 í gr. 6.4.12 í byggingarreglugerð: ,,Einnig er heimilt að víkja frá kröfu um lyftu í þriggja hæða íbúðarhúsi með fjórum íbúðum eða færri í þegar byggðu hverfi".
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir Byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits Árnessýslu og greinargerð er varðar breytingu á húsnæðinu. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 2. 2407178 - Árvegur - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
| Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 3. 2408039 - Byggðarhorn Búgarður 26 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
| Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits Árnessýslu. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 4. 2408090 - Búðarstígur 19C - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir Byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits Árnessýslu. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
|
| Samþykkt |
| Búðarstígur 19C. A mótt 15.08.2024.pdf |
|
|
|
| 5. 2404293 - Eyravegur 42 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
| Byggingarfulltrúi samþykkir breytta uppdrætti. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 6. 2408057 - Eyrarbakkavegur -Farsímamastur og tækjaskýli - Framkvæmdaleyfi |
| Erindinu er vísað til skipulagsnefndar. |
| Vísað í nefnd |
|
|
|
| 7. 2408040 - Lækjargarður - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
| Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja og umhverfissviðs varðandi byggingarhæfi lóða. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa og skil á skráningartöflu. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 8. 2406107 - Langholt 1-Tryggvagata 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
| Byggingarfulltrúi samþykkir flutninginn og gefur út flutningsheimild og stöðuleyfi fyrir húsin frá 13.08.2024-31.12.2024. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 9. 2408134 - Ólafsvellir 24 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
| Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemd eldvarnareftirlits Árnessýslu ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 10. 2408051 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Engjavík 2 - Skjólveggur |
| Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og umhverfissviðs. |
| Vísað í nefnd |
|
|
|
| 11. 2408121 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Fossheiði 58 |
| Afgreiðslu er frestað þar sem uppdráttur er ófullnægjandi og samþykki húsfélags liggur ekki fyrir. |
| Frestað |
|
|
|
| 12. 2408041 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Sílatjörn 5 |
| Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda verði farið að ákvæðum byggingarreglugerðar gr. 2.3.5 f og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 13. 2408074 - Háheiði 15 - Girðing - Tilkynning |
| Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda liggur fyrir samþykki eigenda nágranna lóðar. |
| Samþykkt |
| Umsókn girðing H-15.pdf |
| H13 Samþykki.pdf |
|
|
|
| 14. 2407217 - Rekstrarleyfisumsögn - Brúarstræti 6A - Mar seafood |
Byggingarfulltrúi staðfestir að áformuð starfsemi sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála og að öryggis/lokaúttekt hafi farið fram. Byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 15. 2407216 - Rekstrarleyfisumsögn - Eyravegur 1 - Samúelsson |
Byggingarfulltrúi staðfestir að áformuð starfsemi sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála og að öryggis/lokaúttekt hafi farið fram. Byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 16. 2407182 - Rekstrarleyfisumsögn - gisting í flokki II - Austurvegur 27 - Bókakaffið Selfossi |
| Byggingarfulltrúi getur ekki gefið jákvæða umsögn þar sem ekki liggja fyrir fullnægjandi aðaluppdráttur af kjallara. |
| Hafnað |
|
|
|
| 17. 2408120 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Mar Seafood - Brúarstræti 6 |
| Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 18. 2408050 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Yogasálir ehf. að Eyrarvegi 35 vegna breytingar á starfsleyfi |
Óskað er eftir uppdrætti sem sýnir fyrirhugaða notkun.
|
| Frestað |
|
|
|
| 19. 2408054 - Umsagnarbeiðni - endurnýjun á starfsleyfi fyrir félagsheimilið Gimli |
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 20. 2408055 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Snyrti Barinn að Heiðarvegi 5 |
| Byggingarfulltrúi getur ekki gefið jákvæða umsögn þar sem að húsið hefur ekki staðist lokaúttekt. |
| Hafnað |
|
|
|