Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 134

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
26.06.2024 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Halldór Ásgeirsson f.h. slökkviliðsstjóra,
Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2406008 - Austurás - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi mhl 06-08
Bent Larsen Fróðason hönnunarstjóri fyrir hönd Austurás hestar ehf. sækir um leyfi til að byggja 3 gistihús mhl 06-08.
Stærð hvers hús; 58,2m² og 232,8m³
Heildar stærð fyrir mhl 06-08 174,6m² & 698,4m³

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Samþykkt
2. 2406009 - Austurás - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - mhl 09
Bent Larsen Fróðason hönnunarstjóri fyrir hönd Austurás hestar ehf. sækir um leyfi til að byggja 1 gistihús mhl 09.
Helstu stærðir; 61,1m² og 244,4 m³

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
3. 2406005 - Austurás - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - mhl 10
Bent Larsen Fróðason hönnunarstjóri fyrir hönd Austurás hestar ehf. sækir um leyfi til að byggja aðstöðuhús mhl 10.
Helstu stærðir; 28,1m² og 92,7 m³


Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
4. 2406291 - Miðstræti 2-8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hákon Ingi Sveinbjörnsson hönnuður fyrir hönd Sigtún þróunarfélags ehf. sækir um leyfi til að byggja mannvirki með verslun/þjónustu og íbúðir.
Helstu stærðir eru; 3.281,3m2 og 10.834,0m3

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlit Árnessýslu ásamt jákvæðri umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands auk Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
5. 2406292 - Miðstræti 7-9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hákon Ingi Sveinbjörnsson hönnuður fyrir hönd Sigtún þróunarfélags ehf. sækir um leyfi til að byggja mannvirki með verslun/þjónustu, íbúðir ásamt bílakjallara.
Helstu stærðir eru; 2.521,1m2 og 7.432,8m3

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Erindinu er frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
6. 2406228 - Norðurbraut 31 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Svanur Þór Brandsson hönnunarstjóri fyrir hönd Marie Sonja Jónsdóttir sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 85,5m² og 302,7 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
7. 2406065 - Norðurbraut 34 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Árni Gunnar Kristjánsson hönnunarstjóri fyrir hönd Magnús Inga Mássonar sækir um leyfi til að byggja einbýli. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrua númer 133 og var frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Helstu stærðir eru; 140,2m² og 644,7 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
8. 2406278 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Sóltún 22 - Smáhýsi
Guðjón Magnússon eigandi af Sóltún 22, Auðbjör Guðmundsdóttir & Þórir Már Þórðarson eigendur að Sóltúni 24 og Karl Bachmann Lúðvíksson & Rasha Merza eigendur af Fosstúni 21 tilkynnir samþykki á byggingaráformum vegna smáhýsis nær lóðarmörkum en 3 metrar.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda verði farið að ákvæðum byggingarreglugerðar gr. 2.3.5 f og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Samþykkt
9. 2406279 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Kjarrhólar 14 - skjólveggur
Sabrina Dedler & Andreas Dedler eigendur Kjarrhóla 14 og Geirmundur Sigurðsson & Margrét Guðmundsdóttir eigendur Kjarrhóla 16 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðingar.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda verði farið að ákvæðum byggingarreglugerðar gr. 2.3.5 e og leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5.
Samþykkt
10. 2311236 - Smáhýsi á lóð - Tjaldhólar 46
Málið var áður á dagskrá 133. fundar.
Byggingarfulltrúa hafa borist athugasemdir vegna smáhýsis á lóð nr. 46 sem ekki er sett upp í samræmi við gr. 2.3.5 í byggingarreglugerð. Byggingarfulltrúi sendi eiganda nr. 46 bréf dags. 17.11.2023 og aftur 27.05.2024 þar sem gefinn er frestur til andmæla til 08.06.2024 og upplýst að ákvörðun um hvort dagsektir verði lagðar á verði tekin þann 12.06.2024.
Á fundinum var samþykkt í samræmi við gr. 2.9.2.í gildandi byggingarreglugerð að leggja á dagsektir kr. 30.000,- frá og með birtingu.

Aðilar hafa skiptst á bréfum og verið í samskiptum við byggingarfulltrúa. Ekki er útlit fyrir að þau nái samkomulagi um staðsetningu smáhýsins.
Vegna alvarlegra veikinda biðja íbúar í nr. 46 um ótímabundinn frest á aðgerðum (dagsektum).
Byggingarfulltrúi ítrekar samþykkt frá fyrri fundi dags 12.06.2024: Eigendur Tjaldhóla 46 fjarlægi smáhýsi fyrir 15. júlí 2024 ella verði í samræmi við gr. 2.9.2.í gildandi byggingarreglugerð lagðar á dagsektir kr. 30.000,- frá og með birtingu.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica