1. 2602032 - Austurvegur 28 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kjartan Sigurbjartsson hönnuður fyrir hönd Samsteypan ehf. skilar inn uppfærðum aðaluppdrætti vegna breytinga á innra skipulagi á annari hæð í vesturálmu.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnaeftirliti brunavarna Árnessýslu.. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
2. 2602002 - Ásland 9-11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Fagralands ehf. sækir um leyfi til að byggja Parhús. Helstu stærðir eru; 302,8m² og 1211,6m³. Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
3. 2602175 - Hoftún 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sæmundur Ágúst Óskarsson hönnuður fyrir hönd Jón Árna Jónssonar sækir um leyfi til að byggja vélaskemmu. Helstu stærðir eru; 339,4m² og 1696,5m³.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
4. 2601391 - Hrísholt 9 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)
Sveitarfélagið Árborg sækir um leyfi til að rífa geymslu að Hrísholti 9.
Byggingarheimild til niðurrifs verður gefin út að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum: - Vottorð um að eignin sé veðbandalaus verði lagt fram. - Áætlun um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs verði lögð fram. - Byggingarstjóri verði skráður á framkvæmdina.
Samþykkt
5. 2601339 - Hörðuvellir 1B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Tómas Alfonsson, aðalhönnurður f.h. HS Veitna hf. sækir um leyfi til að setja upp spennistöð á lóðinni. Helstu stærðir eru 9,8 m2 og 30,9 m3
Byggingarfulltrúi staðfestir móttöku tilkynningar, að mannvirkjagerð falli undir 1.mgr. 2.3.6. og að hún samræmist skipulagi.
Samþykkt
6. 2602188 - Suðurbraut 45 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðjón Þórir Sigfússon hönnuður fyrir hönd Hafliða Hafliðason sækir um leyfi til að byggja einbýli. Helstu stærðir eru; 220,6m² og 825,1m³.
Erindinu er frestað þar sem að staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn í skilagátt HMS liggur ekki fyrir.
Frestað
7. 2601366 - Suðurleið 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Jón Davíð Ásgeirsson hönnuður fyrir hönd Guðrúnar Theódórsdóttur sækir um leyfi til að byggja einbýli. Helstu stærðir eru; 201,8m² og 994,1m³.
Erindinu er frestað þar sem að staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn í skilagátt HMS liggur ekki fyrir.
Frestað
8. 2512191 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Art hostel að Hafnargötu 9
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna umsóknar Jiri Komorous um endurnýjun á starfsleyfi vegna reksturs Art Hostel / Fisherinn guesthouse. Heiti staðar: Fisherinn guesthouse, Hafnargata 9 825 Stokkseyri F2276999 rýmisnúmer 01 0109, F2277002 rýmisnúmer 01 0122, F2277004 rýmisnúmer 01 0201, F2277007 rýmisnúmer 01 0209, F2277008 rýmisnúmer 01 0302, F2277009 rýmisnúmer 01 0304, F2277010 rýmisnúmer 01 0305.
Byggingarfulltrúi veitir umsögn þegar skoðun eldvarnareftirlits og úttektarmanni byggingarfullrúa liggur fyrir.