Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 144

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
18.12.2024 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2411277 - Austurvegur 65 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Birkir Kúld Pétursson hönnunarstjóri fyrir hönd Mjólkursamsölunar ehf. sækir um leyfi til að byggja 2 viðbyggingar við núverandi hús.
Helstu stærðir eru; 290,6m² & 1.467,4m³.

Erindinu er frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
2. 2201127 - Björkurstekkur 5-7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kjartan Sigurbjartsson hönnunarstjóri fyrir hönd Gól ehf sendir inn breyttan aðaluppdrátt þar sem búið er að breyta úr sléttu þaki yfir í valmaþak ásamt því að húsið hefur verið minnkað um 5m². Erindið var áður á afgreiðslufundi númer 143 og var frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Byggingarfulltrúi samþykkir fram lagða teikningu.
Samþykkt
3. 2410345 - Erlurimi 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Samúel Smári Hreggviðsson hönnunarstjóri fyrir hönd Ingunnar Guðmundsdóttur sækir um leyfi til að byggja sólstofu.
Helstu stærðir eru; 33,6m² & 119,4m³.
Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 141 og ákveðið var að vísa erindinu til skipulagsnefndar.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og hefur verið grenndarkynnt án athugasemda. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt skil á skráningartöflu. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
4. 2011164 - Háheiði 13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðjón Þórir Sigfússon hönnunarstjóri fyrir hönd B.R. Sverrisson ehf skilar inn reyndarteikningum þar sem að milliloft hafa verið bætt við í 4 iðnaðarbilum
Helstu stærðir eru; 1160,7m² & 5976,731m³.

Byggingarfulltrúi samþykkir fram lagða teikningu þegar að aðaluppdráttur hefur verið lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa.
Samþykkt
5. 2410346 - Stekkholt 30 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnunarstjóri fyrir hönd Loga Geir Þórlákssoonar sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu við bílgeymslu.
Helstu stærðir eru; 20,2m².
Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 141 og var erindinu vísað til skipulagsnefndar.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og hefur verið grenndarkynnt án athugasemda. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
6. 2202204 - Tryggvagata 10-12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ásgeir Ásgeirsson hönnunarstjóri fyrir hönd JÁVERK ehf sendir inn breyttan aðaluppdrátt þar sem búið er að breyta eldhúsum ásamt því að bílastæði fyrir hreyfihamlaða hefur verið fært úr kjallara uppá lóð.
Byggingarfulltrúi samþykkir fram lagða teikningu þegar að aðaluppdráttur hefur verið lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa.
Samþykkt
7. 2412033 - Tryggvagata 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Halldór Eiríksson hönnunarstjóri frá T.Ark sækir um að stækka efnisgeymslu fyrir byggingaefni á lóð og flytja sorp í sérstakt sorpgerði.
Helstu stærðir 31,3m² & 129,2m³

Erindinu er frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
8. 2412096 - Lækjargarður - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)
Linda Rut Larsen sækir um leyfi til að rífa íbúðarhús að Lækjargarði.
Húsið hefur verið notað til æfingar hjá Slökkviliði Árnessýslu.

Skilað hefur verið inn veðbókavottorði ásamt áætlun um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs.

Byggingarheimild til niðurrifs verður gefin út að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

- Byggingarstjóri verði skráður á framkvæmdina.
Samþykkt
9. 2409311 - Skólavellir 5 - Athugasemdir nágranna
Lögfræðingur nágranna hefur óskað m.a. eftir upplýsingum um, hvort allar þær framkvæmdir og breytingar sem átt hafa sér stað að Skólavöllum 5 hafi verið gerðar á grundvelli tilskilinna leyfa. Byggingarfulltrúi hefur óskað eftir skýringum og greinargerð eiganda hússins.
Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 142 og þá var veittur frestur til 27.11.2024 til þess að bregðast við athugasemdum.

Lóðarhafi kom til fundar við byggingarfulltrúa 18.11.2024 þar sem farið var yfir ábendingar fyrri samskipti lóðarhafa og byggingarfulltrúa ásamt því að leiðbeina lóðarhafa hver næstu skref væru ásamt því að gefa aukafrest til 10.12.2024 til þess að skila greinargerð ásamt verkáætlun. Í tölvupósti dagsettum 10.12.2024 frá lóðarhafa tilgreinir hann að hönnuður hans mun skila aðaluppdrættinum inn í febrúar ásamt því að bílar verði fjarlægðir í síðasta lagi 17.desember og óskar eftir fresti til 01.04.2024 til að skila uppdráttum og greinarferð um lok framkvæmda við húsið.

Afgreiðslufundur ákveður að leggja dagsektir á lóðarhafa 10.000kr frá 19.desember 2024
Samþykkt
10. 2411268 - Hjarðarholt 13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Davíð Árnason hönnunarstjóri f.h. Hlyns Arnórssonar sækir um leyfi til að byggja við bílskúr 24,4 m2 og breyta notkun úr bílskúr í íbúð. Einnig er tilkynnt um smáhýsi 14,4 m2.
Stærð íbúðar verður 77,1 m2 og 215 m3.
Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 143 og var því hafnað þar sem að umrædd viðbygging er ekki í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar varðandi brunavarnir á lóðarmörkum.
Davíð Árnason hönnunarstjóri hefur lagt inn nýjan aðaluppdrátt af viðbyggingu og samþykki nágranna fyrir stækkuninni.

Málið tengist máli nr. 2409248 þar sem gerðar voru athugasemdir við óleyfisframkvæmdir, krafist greinargerðar og að viðlögðum dagsektum. Umsókn þessi er viðbrögð við athugasemdunum. Deiliskipulag liggur ekki fyrir. Erindinu er hafnað þar sem ekki er hægt að samþykkja nýjan matshluta (02) á lóð ásamt því að umrædd viðbygging er ekki í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar varðandi brunavarnir á lóðarmörkum.

Umsókn um breytta notkun á bílskúr ásamt viðbyggingu er hafnað.
Hafnað
11. 2106233 - Þykkvaflöt 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Við stöðuskoðun byggingarfulltrúa 07.10.2024 voru gerðar alvarlegar athugasemdir m.a. við vanskil á áfangaúttektum og almennan frágang á húsinu en verulegar tafir voru við byggingu á húsinu og stóð það lengi hálfbyggt en óvarið fyrir veðri og vindum.
Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 142 og var ákveðið að fresta dagsektum til 11.12.2024 þar sem að vinna við að þurrka og hreinsa myglu var hafin.

Nú hefur þurrkun og mygluhreinsun verið lokið ásamt því að Byggingarfulltrúi hefur fengið skýrslu sem sýnir að mygluhreinsun hafi virkað á 20 af 22 sýnum. Byggingarstjóri hefur ekki skilað inn áfangaúttektkum í samræmi við stöðu hús ásamt því að lagfæra burðarvirki í samræmi við samþykktar burðarvirkisteikningar.

Afgreiðslufundur ákveður að leggja dagsektir á lóðarhafa 10.000kr frá 19.desember 2024
Samþykkt
12. 2412059 - Ólafsvellir 20 - Óleyfisframkvæmd
Við stöðuskoðun byggingarfulltrúa 09.10.2024 voru gerðar alvarlegar athugasemdir m.a. að húsið hefur verið tekið í notkun þrátt fyrir að öryggisúttekt hefur ekki farið fram ásamt því að vinna við húsið hefur haldið áfram þrátt fyrir að byggingarstjóraskipti hafa ekki formlega farið í gegn. Í stöðuskoðuninni sá byggingarfulltrúi að lóðarhafi hafi niðurgrafið gám á lóð fyrir aftan hús.
Byggingarfulltrúi sendi lóðarhafa bréf dags. 31.10.2024 þar sem segir m.a:
Byggingarfulltrúi fer fram á að gerð verði fullnægjandi grein fyrir framkvæmdinni.
Ef ekki verði gerðar viðeigandi ráðstafanir fyrir 22.11.2024 mun byggingarfulltrúi í framhaldinu beita aðgerðum sem m.a eru tilgreindar í gr 2.9.2. í byggingarreglugerð 112/2012, þ.e. dagsektum sem geta numið allt að 500.000 kr.
Lóðarhafi hefur ekki haft samband né gert athugasemdir við stöðuskoðun byggingarfulltrúa ásamt því að staða málsins hefur ekki verið breytt.

Byggingarfulltrúi fer fram á að gámur sé fjarlægður, byggingarstjóri sé skráður á verkið ásamt iðnmeisturum og að öryggisúttekt fari fram. Ef ekki verður brugðist við framangreindu fyrir 6.janúar 2025 mun verða lagðar á dagsektir 10.000kr.
Samþykkt
13. 2411369 - Stöðuleyfi - Austurvegur 23 fyrir flugeldasölu
Hjálparsveitin Tintron óskar eftir stöðuleyfi fyrir þremur 20 feta gámum sem notaðir verða til sölu á flugeldum fyrir tímabilið 26.12.2024-08.01.2025
Byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir þremur 20 feta gámum fyrir tímabilið 26.12.2024-08.01.2025.
Samþykkt
14. 2412222 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Arekie ehf vegna reksturs veitingarstaðar að Austurveg 2D
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Arekie ehf. um nýtt starfsleyfi fyrir veitingastað að Austurveg 2D, fnr. F2512791.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
15. 2412207 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Nettó (Eyravegur 42)
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Samkaupa ehf um nýtt starfsleyfi vegna reksturs matvöruverslunar Nettó að Eyravegi 42, fnr. F2254922.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist öryggisúttekt, þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
16. 2411199 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Lyfjaval að Eyravegi 42
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Lyfjaval um nýtt starfsleyfi fyrir apótek að Eyravegi 42, fnr. F2254922.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist öryggisúttekt, þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.
Samþykkt
17. 2412204 - Rekstrarleyfisumsögn - Vegna veitinga í flokki II að Engjavegi 56 F2185873
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna umsóknar Umbun ehf. um rekstrarleyfi til veitinga í flokki II, Tegund: C Veitingastofa.
Heiti staðar: Gesthús Selfoss, Engjavegur 56.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt
18. 2412183 - Rekstrarleyfisumsögn - Engjavegur 56 - Gesthús Selfoss F2185873
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna umsóknar Umbun ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokk II, Tegund: H Frístundahús fyrir matshluta 04, 05, 06, 07, 08, 09, 10, 11, 12, 13 og 14.
Heiti staðar: Gesthús Selfoss, Engjavegur 56, 800 Selfossi. Áformaður hámarksfjöldi gesta er 88.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt
19. 2412182 - Rekstrarleyfisumsögn - Austurvegur 2D - Arekie ehf. F2512791
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna umsóknar Umbun ehf. um rekstrarleyfi til veitinga í flokki II, Tegund: A Veitingahús.
Heiti staðar: Arekie, Austurvegur 2D, 800 Selfoss.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:30 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica