Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 119

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
04.10.2023 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Jón Þór Jóhannsson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2309272 - Eyravegur 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björn Guðbrandsson hönnuður fyrir hönd JAE eignir ehf. sækir um leyfi til að breyta núverandi gluggum og klæðningu á 3.hæð vegna endurbóta.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
2. 2309095 - Hellismýri 14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eggert Guðmundsson hönnuður fyrir hönd Ragnhildar Sigurðardóttur sækir um leyfi til að stækka núverandi milliloft úr 26,8m² í 66,8m².
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir Eldvarnareftirlits Árnessýslu.
Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
3. 2306426 - Suðurbraut 40 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðjón Þórir Sigfússon hönnuður fyrir hönd Óskar Inga Gíslason sækir um leyfi til að byggja hús sem á að nýta í bændagistingu. Helstu stærðir eru; 25 m² & 79,7m³.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
4. 2309300 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum - Smáraland 23
Sölvi Leví Gunnarsson og Lea Agnarsdóttir óska eftir samþykki til að reisa gróðurhús nær lóðarmörkum en 3m. Fyrir liggur samþykki eiganda Smáraland 21
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5 f. og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Samþykkt
5. 2309193 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir daggæslu að Grashaga 18
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgafu starfsleyfis fyrir daggæslu að Grashaga 18, Selfossi.
Byggingarfulltrúi staðfestir að húsið er skráð á byggingarstigi 7 (fullgert hús). Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
6. 2309087 - Umsagnarbeiðni - Nyibaer Studio apartment Nýjabæ 6
Heilbrigðiseftirlir Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Studio apartment Nýjabæ 6 Selfossi 801.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur eignarými 0102 í matshluta 1 staðist öryggisúttekt þar af leiðandi gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
7. 2309297 - Umsagnarbeiðni - Starfsleyfi fyrir South Center ehf Austurvegi 2d
Heilbrigðiseftirlir Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir veitingastað og upplýsingamiðstöð á Austurvegi 2d Selfossi.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
8. 2309012 - Umsagnarbeiðni - Starfsleyfi fyrir Fröken Selfoss, ÁB Veitingar ehf Brúarstræti 12a
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir ÁB Veitingar ehf að Brúarstræti 12a Selfossi.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
9. 2308089 - Umsagnarbeiðni - Starfsleyfi fyrir snyrtistofu Kerhólar 11
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna starfsleyfis fyrir snyrtistofu að Kerhólum 11 Selfossi.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist samþykktri notkun og fasteignin hefur staðist lokaúttekt. Erindið hefur verið grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
10. 2309056 - Rekstrarleyfisumsögn - Nýibær lóð 6 - Nyibaer studio apartment
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis í flokki II fyrir Nyibær studio apartment til sölu gistingar að Nýabæ lóð 6 Selfoss 801.


Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur eignarými 0102 í matshluta 1 staðist öryggisúttekt þar af leiðandi gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt
11. 2309147 - Rekstrarleyfisumsögn - Brúarstræti 12 A - Fröken Selfoss
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis fyrir veitingar í flokki II A veitingahús að Brúarstræti 12A.


Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og getur staðfest að húsnæðið hefur staðist öryggisúttekt þar með gerir hann ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.

Samþykkt
12. 2011159 - Rekstrarleyfisumsögn - Túngata 9
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis í flokki II fyrir Byggingarþjónustuna ehf til sölu gistingar að Túngötu 9 Eyrarbakka.


Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist samþykktri notkun og fasteignin hefur staðist lokaúttekt. Erindið hefur verið grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt
13. 2310006 - Rekstrarleyfisumsögn - Austurvegur 2D - South Center
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis fyrir veitingar í flokki II C veitingahús að Austurveg 2D, 251-2791,01-0101, hámarksfjöldi gesta 50.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og getur staðfest að húsnæðið hefur staðist lokaúttekt þar með gerir hann ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.

Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica