Jól í Árborg

Hátíðardagskrá aðventu og jóla 2026

Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 18

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
12.11.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir varaformaður, D-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Matthías Bjarnason áheyrnarfulltrúi, B-lista,
Heiðrún Kristmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri, Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari.
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari
Í upphafi fundar lagði formaður til að tekið yrði með afbrigðum 1. mál á dagskrá 4. fundar fræðslu- og frístundanefndar sem haldinn var 11. nóvember sl.
Samþykkt að taka málið inn sem 12. lið á dagskrá bæjarráðs með afbrigðum.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2610275 - Tillaga frá fulltrúa C-lista - framtíðarskipulag umhverfis Kríuna
Erindi frá Birgi Marteinssyni, fulltrúa C-lista, dags. 28. október 2026, um framtíðarskipulag svæðisins umhverfis Kríuna (Hraunprýði) sem og varðveislu listaverksins Kríunnar.
Erindið er lagt fram til kynningar. Bæjarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til umræðu í skipulagsnefnd og menningarnefnd. Starfsmönnum viðkomandi nefnda falið að undirbúa málið í samráði við bæjarstjóra.
Vísað í nefnd
Tölvupóstur - Erindi til bæjarráðs.pdf
Deiliskipulag 2014.pdf
2. 2607018 - Ný heimasíða Sveitarfélagsins Árborgar
Minnisblað frá sviðstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs og verkefnastjóra dags. 9. nóvember 2026, um tillögu að samningi vegna nýrrar heimasíðu.
Kynnt er minnisblað verkefnastjóra og sviðstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 9. nóvember sl., um tillögu að samningi vegna nýrrar heimasíðu.
Bæjarráð samþykkir að gerður verði samningur við Ofið hugbúnaðarhús um þróun og uppsetningu nýs sveitarfélagsvefs og vefja leikskóla og grunnskóla sveitarfélagsins, án skuldbindingar um kaup. Endanleg ákvörðun um kaup verði tekin að loknu mati á því hvort lausnin uppfylli kröfur sveitarfélagsins og að fyrir liggi upplýsingar um rekstrarfyrirkomulag og árlegan rekstrarkostnað sem sveitarfélagið metur ásættanleg.
Samþykkt
3. 2611029 - Uppbygging - Hringvegur frá Ölfusárbrú að Þjórsá
Erindi frá Sveitarfélaginu Árborg og Flóahreppi til innviðaráðherra, dags. 22. október 2026, þar sem sveitarfélögin óska eftir fundi með innviðaráðherra um sameiginlega sýn, fjármögnun og tímasetta framkvæmd þeirra samgöngumannvirkja sem tengjast nýrri Ölfusárbrú og breyttri legu Hringvegar um svæðið.
Lagt fram til kynningar bréf frá Sveitarfélaginu Árborg og Flóahreppi sem sent var innviðaráðherra 22. október sl. þar sem fulltrúar sveitarfélaganna óskuðu eftir fundi með ráðherra til að ræða heildstæða uppbyggingu Hringvegar frá Ölfusárbrú að Þjórsá. Bæjarstjóri upplýsir um fundinn sem haldinn var 5. nóvember sl.
Til kynningar
4. 2611044 - Trúnaðarmál
Bókun færð í trúnaðarbókun.
Samþykkt
5. 2005200 - Samkomulag um íbúðabyggð í Laugardælalandi - Árbakkaland
Lögð eru fram drög að viðauka við samkomulag, dags. 30. maí 2020, sem upphaflega var milli Austurbæjar fasteignafélags ehf. og Auðhumlu svf. annars vegar sem landeigenda og Sveitarfélagsins Árborgar hins vegar, vegna uppbyggingar á landi landeiganda. Greint er frá aðilaskiptum í viðaukanum.
Bæjarráð vísar viðaukanum milli Landsbyggðar hf. og Ásavaðs ehf., sem landeigenda annars vegar, og Sveitarfélagsins Árborgar hins vegar til samþykktar í bæjarstjórn.
Samþykkt
6. 2611085 - Umsögn - Tillaga til þingsályktunar um heimavist fyrir Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Erindi frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 6. nóvember 2026, þar sem óskað er eftir umsögn um þingsályktun um heimavist við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Umsagnarfrestur er til og með 20. nóvember.
Bæjarráð fagnar framkominni tillögu til þingsályktunar um heimavist fyrir Fjölbrautaskóla Suðurlands og tekur heilshugar undir markmið hennar. Bæjarráð áréttar fyrri afstöðu sveitarfélagsins um mikilvægi þess að tryggja varanlega framtíðarlausn í heimavistarmálum skólans og hvetur Alþingi til að fela mennta- og barnamálaráðherra að koma aftur upp heimavist við skólann. Til að varanleg framtíðarlausn sé til staðar leggur bæjarráð til að byggt verði eða keypt húsnæði fyrir heimavist skólans.
Samþykkt
Tölvupóstur - Heiamvist við FSU.pdf
Tillaga til þingsályktunar um heimavist við Fjölbrautaskóla Suðurlands.pdf
7. 2604220 - Ósk um aukinn fjölda klst. til tónlistarkennslu
Erindi frá Tónlistarskóla Árnesinga, dags. 19. október 2026, þar sem óskað er eftir 5 klst. í viðbót frá 1. nóvember 2026. Með því myndi kennslukvóti Árborgar hækka úr 228,5 í klst. 233,5.
Á árunum 2025 og 2026 var samþykkt að auka kennslukvóta Tónlistarskóla Árnesinga í Sveitarfélaginu Árborg um samtals 15 klst. Bæjarstjóri leggur til að ekki verði gert ráð fyrir frekari fjölgun kennslustunda í fjárhagsáætlun ársins 2027, heldur að þeir haldist óbreyttir frá yfirstandandi ári. Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra.
Samþykkt
Svfél. Árborg v. viðbót. frá 1.11.26.pdf
8. 2611079 - Rammasamningur STEF og SFH
Lagður fram til kynningar rammasamningur um samninga STEFs og SFH við sveitarfélög innan Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna opinbers tónflutnings á vegum sveitarfélaga, dags. 20. október 2026. Sveitarfélög með 10-15. þúsund íbúa greiða 88 kr. á íbúa.
Fjárhæð leyfisgjalds miðast við fjölda íbúa í sveitarfélaginu í árslok undangengins árs og breytist þriðja hvert ár í samræmi við breytingar á fjölda íbúa skv. upplýsingum Hagstofu Íslands. Fjárhæðin tekur auk þess mið af breytingu á neysluvísitölu fyrir janúarmánuð ár hvert. Grunnvísitala samningsins er vísitala janúarmánaðar 2026, 668,3.

Lagt fram til kynningar. 
Til kynningar
Tölvupóstur - Nýr rammasamningur um höfundaréttargjöld vegna tónflutnings sveitarfélaga.pdf
9. 2611041 - Framlög sveitarfélaga til SASS 2027
Upplýsingar frá SASS um áætluð framlög sveitarfélaga á Suðurlandi til SASS, ART og annarra verkefna árið 2027.
Lagt fram til kynningar.
Til kynningar
10. 2611040 - Verum viðbúin
Erindi frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra, dags. 2. og 5. nóvember 2026, um bæklinginn Verum viðbúinn.
Lagt fram til kynningar.
Til kynningar
Tölvupóstur - Verum viðbúin upplýsingar til sveitarfélaga Efni til miðlunar.pdf
Sveitafelog_Almannavarnadeild_SpurtogSvarað_02112026.pdf
Almannavarnir_Baeklingur_VerumVidbuin.pdf
11. 2611100 - Ársreikningur Árborgar 2026
Fulltrúar frá PwC mæta á fundinn.
Bryndís Björk Guðjónsdóttir og Berglind Hákonardóttir, endurskoðendur hjá PwC koma inn á fundinn kl. 9:18. Farið er yfir samskiptaáætlun sveitarfélagsins og endurskoðenda vegna vinnu við ársreikning 2026.
Bæjarráð samþykkir framlagða samskiptaáætlun.
Samþykkt
Bryndís Björk Guðjónsdóttir og Berglind Hákonardóttir og yfirgefa fundinn kl. 10:00.
12. 2609030 - Símafrí í grunnskólum Árborgar
Á 4. fundi fræðslu- og frístundanefndar sem haldinn var 11. nóvember sl., var óskað eftir viðbótarfjármagni að fjárhæð kr. 500.000,- fyrir grunnskóla Árborgar til að efla búnað til félagslegrar þátttöku í tengslum við símafrí í grunnskólum.
Bæjarráð tekur vel í beiðni um viðbótarfjármagn til að efla búnað til félagslegrar þátttöku í tengslum við símafrí í grunnskólum. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðauka og vísa inn á dagskrá bæjarráðs, sé fjármagn ekki til staðar innan deilda.
Samþykkt
Fundargerðir
13. 2611001F - Ungmennaráð - 10/2026
10. fundur haldinn 2. nóvember.
Fundargerðir til kynningar
14. 2609188 - Aðalfundur Bergrisans bs 2026
Aðalfundur haldinn 6. október.
Fundagerð aðalfundar Bergrisans 6.10.2026.pdf
15. 2602011 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
1005. fundur haldinn 30. október.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 1005.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:25 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica