Jól í Árborg

Hátíðardagskrá aðventu og jóla 2026

Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Eigna- og veitunefnd - 6

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
10.11.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Olga Bjarnadóttir varaformaður, D-lista,
Ragnar Óskarsson nefndarmaður, D-lista,
Matthías Bjarnason nefndarmaður, B-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson nefndarmaður, S-lista,
Ingunn Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Atli Marel Vokes sviðsstjóri, Sigurður Ólafsson deildarstjóri, Hákon Garðar Þorvaldsson veitustjóri.
Fundargerð ritaði: Atli Marel Vokes, Sviðsstjóri


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2210290 - Gjaldskrár mannvirkja- og umhverfissviðs
Farið yfir drög að gjaldskrám sviðsins fyrir 2027
Nefndin vísar gjaldskrám til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
2. 21044712 - Ný Ölfusárbrú
Farið yfir orðsendingu verktaka varðandi fergingar við Einholtsveg
Nefndin samþykkir að veita heimild til greiðslu aukakostnaðar vegna ferginga í samræmi við framkomna orðsendingu verktaka. Nefndin telur kostnaðinn nauðsynlegan til að tryggja framgang verksins og að framkvæmdum verði lokið með fullnægjandi hætti.
Með bókun þessari felst ekki viðurkenning sveitarfélagsins á réttmæti kostnaðarskiptingarinnar eða bindandi samþykki fyrir henni. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að hafna ábyrgð á umræddum kostnaði og krefjast endurgreiðslna á greiddum reikningum ef niðurstaða samninga eða annarra réttarúrræða leiða í ljós að Vegagerðin skuli bera kostnaðinn. Vísað er til bókunar bæjarráðs frá 137.fundi þann 24.07.2025.
3. 2604308 - Endurgerð á ráðhúströppum
Farið yfir uppfærða kostnaðaráætlun og hönnunargögn vegna útboðs á framkvæmdum við endurgerð á ráðhúströppum.
Nefndin felur sviðsstjóra að bjóða út framkvæmdina í samræmi við fyrirliggjandi gögn.
4. 2611056 - Orkuöflun utan Árborgar
Farið yfir möguleika Selfossveitna til framtíðarorkuöflunar næstu árin. Kynnt drög að könnun fyrir mögulega samstarfsaðila Selfossveitna til að mæta vaxandi orkuþörf næstu áratugina. Nefndin felur veitustjóra að vinna áfram að málinu í samráði við stjórnsýslu- og fjármálasvið og auglýsa könnunina.
5. 2509490 - Fjárfestingaráætlun 2026-2029
Farið yfir endurskoðaða fjárfestingaráætlun 2026
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja hjálagðan viðauka vegna endurskoðunar og breytinga á fjárfestingaráætlun ársins 2026.
6. 2610110 - Fjárfestingaráætlun 2027-2030
Farið yfir fjárfestingaráætlun 2027-2030
Nefndin vísar fjárfestingaráætlun 2027-2030 til fyrri umræðu fjárhagsáætlunargerðar sveitarfélagsins.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica