Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 121

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
29.11.2023 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Ásdís Styrmisdóttir fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Jón Þór Jóhannsson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2311347 - Engjavegur 50b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Jakob Emil Líndal hönnunarstjóri hönnuður fyrir hönd Sveitarfélags Árborgar sækir um leyfi til að breyta núverandi norðurhluta fjölnota íþróttahússins með því að setja upp skjólvegg fyrir framan aðalinngang.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
2. 2311116 - Eyravegur 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hákon Ingi Sveinbjörnsson hönnuður fyrir hönd Sigtún Þróunarfélags ehf. sækir um leyfi til að byggja 4 hæða byggingu fyrir skrifstofur og þjónustu.
Helstu stærðir eru; 2693,0 m² og 7664,0 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa, skil á greinargerð brunahönnunar og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
3. 2311185 - Eyrargata 8B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eiríkur Vignir Pálsson hönnuður fyrir hönd Arnfríðar Einarsdóttur sækir um leyfi til að byggja vinnustofu.
Helstu stærðir eru; 24,5 m² og 69,8 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Fyrir liggur jákvæð umsögn fasteignaeigenda Eyrargötu 8A, Eyrargata 10a & Túngötu 7. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
4. 2311044 - Fossnes 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Vigfús Halldórsson hönnunarstjóri hönnuður fyrir hönd GT ehf. sækir um leyfi til að setja upp hleðsluhús og auglýsingaskjá.
Erindinu er frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
5. 2311313 - Kirkjuvegur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hákon Ingi Sveinbjörnsson hönnuður fyrir hönd Sigtún Þróunarfélags ehf. sækir um leyfi til að byggja óupphitað bílastæðahús þar sem gert ráð fyrir 219 bílastæðum
Helstu stærðir; 6387,1 m².

Erindinu er frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
6. 2310069 - Nesbrú 5a - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Þórhallur Garðarsson hönnuður fyrir hönd Vöruvernd Ísmenn ehf. sækir um leyfi til að byggja atvinnumannvirki var áður á afgreiðslufundi númer 110. Helstu stærðir eru; 307,7 m² og 1.468,8m³.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
7. 2311186 - Víkurheiði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Helena Björgvinsdóttir hönnuður fyrir hönd Sigurð Þorvaldsson. sækir um leyfi til að byggja iðnaðarhús.
Helstu stærðir eru; 2.518 m² og 18.934 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Erindinu er vísað til skipulagsnefndar.
Vísað í nefnd
8. 2311355 - Umsókn um niðurrif, Hjarðarholt 11, 800
Kjartan Garðarsson sækir um leyfi til að rífa bílskúr að Hjarðarholti 11.
Um er að ræða matshluta 02.
Veðbókarvottorð liggur ekki fyrir.

Byggingaráform samþykkt með fyrirvara um að eignin sé veðbandalaus.
Byggingarheimild verður gefin út þegar byggingarstjóri hefur verið skráður á umsóknina.
Samþykkt
9. 2311117 - Umsókn um niðurrif, Stekkholt 22, 800
Óðinn Kalevi Andersen f.h. Sveitarfélags Árborgar sækir um leyfi til að rífa húsnæði við Stekkholt 22.
Um er að ræða matshluta 01.
Veðbókarvottorð liggur ekki fyrir.

Byggingaráform samþykkt með fyrirvara um að eignin sé veðbandalaus.
Byggingarheimild verður gefin út þegar byggingarstjóri hefur verið skráður á umsóknina.
Samþykkt
10. 2311020 - Stöðuleyfi - Norðurleið 10
Linda Þorvaldsdóttir óskar eftir stöðuleyfi fyrir 40 feta gám vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Norðurleið 10.
Sótt er um stöðuleyfi fyrir tímabilið 01.11.2023-01.11.2024

Ekki liggur fyrir umsókn um byggingarleyfi fyrir Norðurleið 10.

Erindinu hafnað.
Hafnað
11. 2311317 - Umsagnarbeiðni - Starfsleyfi fyrir JÁverk ehf endurnýjun Gagnheiði 28 Selfossi
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna endurnýjunar á starfsleyfi fyrir JÁverk ehf vegna mengandi reksturs.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.
Samþykkt
12. 2311316 - Umsagnarbeiðni - Starfsleyfi fyrir Verslun Made in Island Austurvegi 44 Selfossi
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu á starfsleyfi fyrir Made in Island að Austurvegi 44.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
13. 2311315 - Umsagnarbeiðni - Starfsleyfi fyrir gistingu Álalæk 18 Selfossi
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Gististað í flokki II í Álalæk 18 Selfossi 800.
Skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald skal sveitarstjórn m.a. staðfesta eftirfarandi atriði:
a. að starfsemi sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála,
b. að lokaúttekt hafi farið fram á húsnæðinu.
Skv. deiliskipulagi er gert ráð fyrir tiltölulega þéttri íbúðabyggð.
Rekstur gistiheimilis er ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag Árborgar 2020-2036.
Byggingarfulltrúi leggst gegn útgáfu starfsleyfis.
Hafnað
14. 2311338 - Umsagnarbeiðni - Starfsleyfi fyrir Konungskaffi Brúarstræti
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Konungskaffi, Brúarstræti vegna eigendaskipta.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
15. 2311402 - Umsagnarbeiðni - Starfsleyfi fyrir rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II að Móstekk 14-16
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis gistingu í flokki II að Móstekk 14-16 íbúð 203 800 Selfoss
Skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald skal sveitarstjórn m.a. staðfesta eftirfarandi atriði:
a. að starfsemi sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála,
b. að lokaúttekt hafi farið fram á húsnæðinu.
Skv. deiliskipulagi er gert ráð fyrir tiltölulega þéttri íbúðabyggð.
Rekstur gistiheimilis er ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag Árborgar 2020-2036.
Byggingarfulltrúi leggst gegn útgáfu rekstrarleyfis.
Hafnað
16. 2311027 - Rekstrarleyfisumsögn - Álalækur 18 - gististaður í flokki II
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis fyrir Gististað í flokki II í Álalæk 18 Selfossi 800.
Skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald skal sveitarstjórn m.a. staðfesta eftirfarandi atriði:
a. að starfsemi sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála,
b. að lokaúttekt hafi farið fram á húsnæðinu.
Skv. deiliskipulagi er gert ráð fyrir tiltölulega þéttri íbúðabyggð.
Rekstur gistiheimilis er ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag Árborgar 2020-2036.
Byggingarfulltrúi leggst gegn útgáfu rekstrarleyfis.
Hafnað
17. 2311394 - Rekstrarleyfisumsögn - HG hús - Móstekkur 14-16 - gististaður í flokki II
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis fyrir Gististað í flokki II að Móstekk 14-16 íbúð 203 fyrir HG hús 800 Selfossi.
Skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald skal sveitarstjórn m.a. staðfesta eftirfarandi atriði:
a. að starfsemi sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála,
b. að lokaúttekt hafi farið fram á húsnæðinu.
Skv. deiliskipulagi er gert ráð fyrir tiltölulega þéttri íbúðabyggð.
Rekstur gistiheimilis er ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag Árborgar 2020-2036.
Byggingarfulltrúi leggst gegn útgáfu starfsleyfis.
Hafnað

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica