Jól í Árborg

Hátíðardagskrá aðventu og jóla 2026

Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 17

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
05.11.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir varaformaður, D-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Matthías Bjarnason áheyrnarfulltrúi, B-lista,
Heiðrún Kristmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2601408 - Upplýsingar frá mannauðsdeild 2026
Bæjarstjóri kynnir upplýsingar frá mannauðsdeild út október 2026.
Bæjarstjórn kynnir upplýsingar frá mannauðsdeild út október 2026.
Til kynningar
2. 2606217 - Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027-2030
Lagt fram til kynningar uppfært minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dag. 2. nóvember 2026 með uppfærðum forsendum fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2027-2031.
Lagt fram til kynningar. 
Til kynningar
Tölvupóstur - FW Uppfærðar forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027-2031.pdf
3. 2107030 - Samkomulag um Austurbyggð II
Á 52. fundi eigna- og veitunefndar sem haldinn var 24. febrúar 2026 var lagður fram samningur vegna tengingar við hitaveitu í 2.áfanga Austurbyggðar II, ásamt viðauka II við samkomulag um íbúabyggð í Austurbyggð II. Nefndin samþykkti samning um teningar við hitaveitu og vísaði viðauka II við samkomulag um íbúabyggð í Austurbyggð II til bæjarstjórnar.

Á 167. fundi bæjarráðs sem haldinn var 16. apríl 2026 var afgreiðslu viðauka II við samkomulag um íbúabyggð í Austurbyggð II frestað.

Bæjarstjóri leggur til að ný lokadrög að viðauka II við samkomulag um íbúabyggð í Austurbyggð II verði samþykktur.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti lokadrög að viðauka II við samkomulag um íbúabyggð í Austurbyggð II. Lagt til að vísa viðauka II við samkomulag um íbúabyggð í Austurbyggð II til bæjarstjórnar. Bæjarstjóra er falið að undirrita samkomulagið.
Samþykkt
4. 2611014 - Ágóðahlutagreiðsla 2026
Tilkynning um ágóðahlutagreiðslu 2026 frá EBÍ.
Lagt fram til kynningar. 
Til kynningar
Bréf ágóðahlutur 2026 - undirritað.pdf
5. 2604229 - Fundargerðir aðalfundar Listasafns Árnesinga bs 2026
Aðalfundur haldinn 29. september.

Á aðalfundi Listasafns Árnesinga var samþykkir samhljóða að veita arfi Frosta Fjalars Jónssonar, kt. 291236-3169, móttöku með þeim skilyrðum eða kvöðum sem settar eru fram í erfðaskrá í þágu markmiðs arfleiðslunnar og að færa málefni búsins í farveg opinberra skipta skv. ákvæðum laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl. Jafnframt verði óskað eftir því við Héraðsdóm Reykjavíkur að tiltekinn aðili verði skipaður skiptastjóri yfir dánarbúinu með hliðsjón af tillögum stjórnar þar um.

Fundurinn samþykkir samhljóða eftirfarandi bókun vegna málsins:
Fundarmenn vilja nýta tækifærið og votta aðstandendum Frosta Fjalars samúð sína. Samþykkt er að arfurinn verði þeginn enda eru þær óskir sem fylgja arfleiðinni þess eðlis að þær munu nýtast til eflingar faglegu starfi safnsins um ókomna tíð.

Lagt er til við bæjarráð að samþykkja móttöku á arfinum.

Bæjarráð Árborgar samþykkir samhljóða að Listasafn Árnesinga bs veiti arfi Frosta Fjalars Jónssonar, kt. 291236-3169, móttöku með þeim skilyrðum eða kvöðum sem settar eru fram í erfðaskrá í þágu markmiðs arfleiðslunnar og að færa málefni búsins í farveg opinberra skipta skv. ákvæðum laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl. Jafnframt verði óskað eftir því við Héraðsdóm Reykjavíkur að tiltekinn aðili verði skipaður skiptastjóri yfir dánarbúinu með hliðsjón af tillögum stjórnar þar um.
Samþykkt
Aðalfundur Listasafns Árnesinga bs 29.09.2026.pdf
Fundargerðir
6. 2610023F - Eigna- og veitunefnd - 5
5. fundur haldinn 27. október.
7. 2610024F - Skipulagsnefnd - 7
7. fundur haldinn 28. október.
Fundargerðir til kynningar
8. 2604210 - Fundargerðir Héraðsnefndar Árnesinga 2026
Aðalfundur haldinn 29. september.
Lagt fram til kynningar.
Aðalfundur Héraðsnefndar Árnesinga 29.09.2026.pdf
9. 2610023 - Fundargerðir Brunavarna Árnessýslu bs 2026 - 2030
Aðalfundur haldinn 29. september.
Lagt fram til kynningar.
Aðalfundur Brunavarna Árnessýslu bs 29.09.2026.pdf
10. 2608217 - Fundargerðir Tónlistarskóla Árnesinga bs 2026 -2030
Aðalfundur haldinn 29. september.
Lagt fram til kynningar.
Aðalfundur Tónlistarskóla Árnesinga bs 29.09.2026.pdf
11. 2608126 - Fundargerðir Byggðasafns Árnesinga bs 2026 - 2030
Aðalfundur haldinn 29. september.
Lagt fram til kynningar.
Aðalfundur Byggðasafns Árnesinga bs 29.09.2026.pdf
12. 2604228 - Fundargerðir aðalfundar Héraðsskjalasafns Árnesinga bs 2026
Aðalfundur haldinn 29. september.
Ársskýrsal Héraðsskjalasafns Árnesinga 2025.

Lagt fram til kynningar.
Aðalfundur Héraðsskjalasafns Árnesinga 29.09.2026.pdf
13. 2601407 - Fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands 2026
258. fundur haldinn 22. október.
Lagt fram til kynningar.
258. fundur_fundargerd.pdf
Tölvupóstur - 2610059HS - Fundargerð Heilbrigðisnefndar Suðurlands - 258. fundur 22. október 2026 - ÁRÍÐANDI TILKYNNING.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 8:46 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica