Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 147

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
05.02.2025 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Halldór Ásgeirsson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2501420 - Austurvegur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ellert Hreinsson hönnuður fyrir hönd Árfoss ehf. sækir um leyfi fyrir innanhúss breytingum í kjallara.
Helstu breytingar eru fjölgun á skrifstofum ásamt starfsmanna aðstöðu.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt skil á skráningartöflu. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
2. 2501501 - Byggðarhorn Búgarður 9A - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðmundur Gunnar Guðnason hönnuður fyrir hönd Sigurðar Örn Sigurðssonar sækir um leyfi til að byggja einbýlishús.
Helstu stærðir eru; 341.0 m² og 1425.0 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er ekki í samræmi við deiliskipulag.
Erindinu er hafnað.
Hafnað
3. 2501500 - Byggðarhorn Búgarður 9B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðmundur Gunnar Guðnason hönnuður fyrir hönd Sigurðar Örn Sigurðssonar sækir um leyfi til að byggja einbýlishús.
Helstu stærðir eru; 341.0 m² og 1425.0 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er ekki í samræmi við deiliskipulag.
Erindinu er hafnað.
Hafnað
4. 2501456 - Eyravegur 53 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sverrir Ágústsson hönnuður fyrir hönd HS veitur hf. sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu við núverandi hús.
Helstu stærðir viðbyggingar eru; 217,7 m² og 701,8 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
5. 2502009 - Norðurleið 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Helgi Guðjón Bragason hönnuður fyrir hönd Reynis Þorvaldssonar sækir um leyfi til að breyta notkun á bílskúr.


Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
6. 2304137 - Suðurleið 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Stefán Þ. Ingólfsson hönnuður fyrir hönd Myrkraborgir ehf. sækir um leyfi til að byggja 2 hæða einbýlishús.
Helstu stærðir eru; 209,6 m² og 567,1 m³.
Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 114 og var hafnað vegna óleyfisframkvæmda á lóð.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
7. 2501289 - Kjarrhólar 4 - Tilkyning um samþykki á byggingaráformum - Smáhýsi
Leifur Viðarsson og Hjaltey Sigurðardóttir eigendur af Kjarrhólum 4, Hjalti Jóhannesson og Þórdís Sigurðardóttir eigendur að Kjarrhólum 6 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna smáhýsis nær lóðarmörkum en 3 metrar.
Byggingarfulltrúi getur ekki samþykkt áformin þar sem smáhýsið stenst ekki ákvæði byggingarreglugerðar gr. 2.3.5 f og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Hafnað
8. 2502025 - Stöðuleyfi - Gámur að Gauksrima 1
PK Gröfuþjónustan ehf. óskar eftir stöðuleyfi fyrir 20 feta gám vegna endurbóta á bílskúr tímabilið 01.02.2025-01.02.2026

Byggingarfulltrúi hafnar umsókn um stöðuleyfi, í samræmi við tæknilýsingu sveitarfélagsins Árborg þá skerðir gámurinn sjónlínur við gatnamót.
Hafnað
9. 2501448 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Hólaborg ehf. vegna rekstur gististaðar
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Hólaborg ehf. um nýtt starfsleyfi vegna rekstur gististaðar.
Heiti staðar: Hólaborg, 801 Selfoss F2319030, rýmisnúmer 01 0201 og hámarksfjöldi gesta er 4.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt
10. 2502015 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Ópus Studio að Eyravegi 38
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Ópus studio um starfsleyfi vegna eigendaskipta.
Heiti staðar Ópus Studio að Eyraveg 38, 800 Selfoss F2302051

Byggingarfulltrúi getur ekki gefið jákvæða umsögn þar sem að öryggis- og eða lokaúttekt hefur ekki farið fram.
Hafnað
11. 2502035 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Hbts.ehf vegna rekstur veitingarstaðar að Eyraveg 32
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Hbts ehf um endurnýjun á starfsleyfi.
Heiti staðar Hamborgarabúlla Tómasar að Eyraveg 32, 800 Selfoss F2253788

Byggingarfulltrúi getur ekki gefið jákvæða umsögn þar sem að öryggis- og eða lokaúttekt hefur ekki farið fram.
Hafnað
12. 2502046 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Gott kvöld ehf. vegna reksturs skemmtistaðar að Eyraveg 1
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Gott kvöld ehf um nýtt starfsleyfi vegna eigendaskipta.
Heiti staðar Risið að Eyraveg 1, 800 Selfoss F2520458

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt
13. 2501329 - Rekstrarleyfisumsögn - gisting í flokki II - Hólaborg
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna Hólaborg ehf. um rekstrarleyfi til gistinga í flokki II, Tegund: G Íbúðir.
Heiti staðar: Hólaborg, 801 Selfoss F2319030, rýmisnúmer 01 0201 og hámarksfjöldi gesta er 4.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica