| Bæjarstjórn - 69 |
Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi, 04.02.2026 og hófst hann kl. 16:00 |
|
Fundinn sátu: Kjartan Björnsson forseti bæjarstjórnar, Bragi Bjarnason bæjarfulltrúi, D-lista, Fjóla Steindóra Kristinsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson bæjarfulltrúi, D-lista, Brynhildur Jónsdóttir varaforseti bæjarstjórnar, Helga Lind Pálsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista, Björgvin Guðni Sigurðsson varamaður, S-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista, Ellý Tómasdóttir bæjarfulltrúi, B-lista, Álfheiður Eymarsdóttir bæjarfulltrúi, Á-lista, Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari. |
|
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari |
|
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar. |
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
| Almenn erindi |
| 1. 2510393 - Fyrirkomulag - Hverfisráð Árborgar |
Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Björgvin G. Sigurðsson, S-lista.
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista, varaforseti, tekur yfir stjórn fundarins kl. 16:16.
Kjartan Björnsson, D-lista, Ellý Tómasdóttir, B-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, taka til máls. Kjartan Björnsson yfirgefur fundinn kl. 16:22.
Kjartan Björnsson, D-lista, kemur inn á fundinn og tekur aftur yfir stjórn fundarins kl. 16.25.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 9 atkvæðum, 2 atkvæðum S-lista, 1 atkvæði B-lista, 1 atkvæði Á-lista og 5 atkvæðum D-lista. Arnar Freyr Ólafsson, B-lista situr hjá og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista greiðir atkvæði á móti tillögunni.
Bæjarstjóri boðar til fyrsta aðalfundar hverfisráðanna. |
| Samþykktir fyrir hverfisráð.pdf |
|
|
|
| 2. 2510377 - Gjaldskrár 2026 |
Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11. atkvæðum. |
| Gjaldskrá 2026 frístund og sumarfrístund lagfært 29.1.2026.pdf |
|
|
|
| 3. 2601316 - Siðareglur starfsfólks Sveitarfélagsins Árborgar |
Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Ellý Tómasdóttir, B-lista, Brynhildur Jónsdóttir, D-lista og Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum. |
| Siðareglur starfsfólks Sveitarfélagsins Árborgar.pdf |
|
|
|
| 4. 2601314 - Fossnes og Mýrar - Óveruleg breyting á aðalskipulagi - Breytt landnotkun |
Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum framlagða breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins, Fossness og Mýrar, á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
| 114116-01-ASKBR-001-V01-Fossnes Mýrar VÞ4.pdf |
| Ov-br_gatlisti_Fossanes-Mýrar.pdf |
|
|
|
| 5. 2601095 - Grænamörk, Austurvegur; Deiliskipulag Grænumarkarhverfis |
Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista,
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum tillögu bæjarstjóra um að samþykkja skipulagslýsingu til kynningar og umsagnar í samræmi við 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
| 114201-01-LYS-001-V01 Grænamörk.pdf |
|
|
|
| 6. 2506399 - Tryggvagata 36 - Deiliskipulagsbreyting |
Björgvin G. Sigurðsson, S-lista víkur af fundinum undir þessum lið, kl. 16:49, vegna vanhæfis.
Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Ellý Tómasdóttir, B-lista og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista.
Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, leggur að nýju fram bókun sína frá skipulagsnefndarfundi: "Undirritaður tekur undir ítrekaðar athugasemdir þær sem borist hafa frá íbúum nærliggjandi húsa sem snúa að hæð og byggingarmagni sem lagt er til skv. framlagðri deiliskipulags tillögu. Undirritaður telur að bygging á reitnum eigi að hámarki að vera 2 hæðir og byggingarmagn verði minnkað í samræmi við það til að falla betur að heildarásýnd hverfisins og nærliggjandi byggingum sem eru að mestu leyti einbýlishús á 1 hæð. Af framangreindum ástæðum greiði ég atkvæði á móti deiliskipulagstillögunni."
Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum, 5 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á-lista, framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og telur að brugðist hafi verið við athugasemdum og umsögnum sem bárust vegna tillögunnar á auglýsing- og kynningartíma tillögunnar. Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista sat hjá við atkvæðagreiðslu og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista og báðir fulltrúar B-lista greiða atkvæði á móti tillögunni.
Ellý Tómasdóttir, B-lista, gerði grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun: "Ákvörðunin byggir fyrst og fremst á áhyggjum af umfangi þeirrar uppbyggingar sem hér er lögð til og hvernig hún fellur að núverandi byggð og aðstæðum á svæðinu. Að mínu mati vekur stærð verkefnisins, ásamt fjölda íbúða og fyrirkomulagi bílastæða, upp eðlilegar spurningar um hvort um sé að ræða hæfilega nýtingu lóðarinnar og hvort nægilegt tillit hafi verið tekið til nærliggjandi byggðar og athugasemda íbúa. Tel ég mikilvægt að við sem sveitarfélag drögum lærdóm af ferlinu. Æskilegt er að skýrari skipulagsforsendur og rammi um uppbyggingu liggi fyrir áður en lóðir eru seldar, þannig að auka megi fyrirsjáanleika og draga úr ágreiningi. Með því móti tel ég að við getum styrkt traust íbúa til ákvarðanatöku sveitarfélagsins og stuðlað að uppbyggingu sem nýtur breiðari sáttar."
Björgvin G. Sigurðsson kemur aftur inn á fundinn kl. 17:02.
|
| V318 BR DSK Uppdráttur 251125.pdf |
| Tryggvagata 36 - Athugasemdir Fannars dags. 18.1.2026.pdf |
| Umsögn Brunavarna Árnessýslu 23.12.2025, Tryggvagata 36 dskbr..pdf |
| Athugasemd íbúa við Sigtún 34 - 26.1.2026, Tryggvagata 36 dskbr..pdf |
| Athugasemd íbúa við Tryggvagötu 32 25.1.2026, Tryggvagata 36 dskbr..pdf |
| Umsögn Vegagerðarinnar 12.1.2025, Tryggvagata 36 dskbr..pdf |
| Umsögn Brunavarna Árnessýslu 23.12.2025, Tryggvagata 36 dskbr..pdf |
| samantekt athugasemda og umsagna; tryggvagata 36.pdf |
|
|
|
| 7. 2601230 - Breyting á samþykktum fyrir Sorpstöð Suðurlands bs |
Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.
Lagt er til við bæjarstjórn a vísa breytingu á samþykktum fyrir SOS til síðari umræðu.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum. |
| Fundargerð aukaaðalfundar 16.01.2026.pdf |
| Samantekt breytinga á samþykktum.pdf |
|
|
|
| 8. 2601274 - Viðauki við fjárhagsáætlun SOS 2026 |
| Tillagan er borgin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum. |
| Fundargerð aukaaðalfundar 16.01.2026.pdf |
|
|
|
|
| Fundargerðir |
| 9. 2512018F - Eigna- og veitunefnd - 50 |
| Til máls tekur Sveinn Ægir Birgisson, D-lista. |
|
|
|
| 10. 2601010F - Skipulagsnefnd - 55 |
|
|
|
| 11. 2601011F - Fræðslu- og frístundanefnd - 25 |
| Til máls tekur Bryndís Jónsdóttir, D-lista. |
|
|
|
| 12. 2601012F - Ungmennaráð - 10/2025 |
| Til máls tekur Sveinn Ægir Birgisson, D-lista. |
|
|
|
| 13. 2601009F - Bæjarráð - 156 |
|
|
|
| 14. 2601024F - Bæjarráð - 157 |
| Til máls taka Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista og Ellý Tómasdóttir, B-lista. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:21 |
|