Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 158

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
20.08.2025 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Halldór Ásgeirsson f.h. slökkviliðsstjóra, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2302051 - Austurvegur 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Samúel Smári Hreggviðsson hönnuður fyrir hönd Fossver ehf. skilar inn uppfærðum aðaluppdráttum. Helstu stærðir eru 2.443,3m² og 8.292,3m³.
Helstu breytingar eru; í kjallara er gert ráð fyrir skrifstofum í stað þjónusturýmum, 2.hæð breytist úr íbúðum yfir í skrifstofur.
Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 157 þar sem því var hafnað vegna þess að það var ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: Aðal- og séruppdrættir ásamt afstöðumynd af vinnusvæði sem tekur meðal annars á aðkomu og öryggismálum á verktíma sem eru undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
2. 2507180 - Byggðarhorn Búgarður 54 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Svanur Þór Brandsson hönnuður fyrir hönd Sigurjón Kjartanssonar sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 399,6m² og 1.676,0m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Skráningartafla á excel Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
3. 2503562 - Fosstún 7 - Umsókn um byggingarleyfi - sólstofa
Eiríkur Vignir Pálsson hönnuður fyrir hönd Ólafíu Ingólfsdóttur sækir um leyfi til að byggja sólstofu.
Helstu stærðir eru; 15,9m².

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og hefur verið grenndarkynnt án athugasemda. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. Skráningartöflu á excel formi ásamt pdf. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
4. 2508074 - Hellisland svæði 36 R - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Hansínu Kristjánsdóttur sækir um leyfi til að byggja stakstæða fylgibyggingu sem verður notað sem vinnuaðstaða.
Helstu stærðir eru; 70m² og 251,7m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
5. 2508073 - Móstekkur 90 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eiríkur Vignir Pálsson hönnuður fyrir hönd Ernu Guðrúnu Ólafsdóttur sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 270,1m² og 1025,1m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og Brunavarna Árnessýslu ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
6. 2507272 - Norðurgata 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Helga Guðrún Vilmundardóttir hönnuður fyrir hönd Andra Guðnýjarsonar sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 357,6m² og 1.481,7m³.

Erindinu er frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
7. 2504257 - Seljavegur 9 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Eyrún Ólafsdóttir sækir um leyfi til að fjarlægja eldhúsglugga og koma fyrir tvöfaldri útihurð.

Byggingarfulltrúi samþykkir tilkynnta framkvæmd samkvæmt meðfylgjandi gögnum, að mati skipulagsfulltrúa þá skerðast hagsmunir nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn og er því ekki talin þörf á að grenndarkynna breytinguna sérstaklega.
Samþykkt
8. 2508145 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum - Birkivellir 7
Ingólfur Ágústsson & Sigríður Etna Marinósdóttir eigendur af Birkivöllum 7 og Erna Karen Óskarsdóttir & Bjarki Rafn Kristjánsson eigendur af Birkivöllum 9 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðinar nær lóðarmörkum en 3 metrar.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform er varðar skjólgirðingu enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5.e og leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5. um skjólveggi og girðingar.
Samþykkt
9. 2508085 - Baugstjörn 32 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum, skjólveggur
Inga Birna Pálsdóttir eigandi af Baugstjörn 32 og Sóley H. Hólmarsdóttir & Magnús N. Reykdalsson eigendur af Baugstjörn 30 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðinar nær lóðarmörkum en 3 metrar eigandi leitar einnig eftir samþykki frá Sveitarfélaginu Árborg.
Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og Umhverfissviðs
Vísað í nefnd
10. 2507244 - Móstekkur 89 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum
Sigurður Steinar Valdimarsson eigandi af Móstekk 89b óskar eftir samþykki frá Sveitarfélaginu Árborg vegna skjólgirðinar nær lóðarmörkum en 3 metrar.

Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og Umhverfissviðs
Vísað í nefnd
11. 2508050 - Tilkynning um samþykki á bygginaráformum, Móstekkur 91
Selma Þóra Jóhannsdóttir eigandi af Móstekk 89b óskar eftir samþykki frá Sveitarfélaginu Árborg vegna skjólgirðinar nær lóðarmörkum en 3 metrar.

Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og Umhverfissviðs
Vísað í nefnd
12. 2508041 - Sílalækur 2 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum, skjólveggur
Pawel Adam Lopatka eigandi af Sílalæk 2 og eigendur af Urriðalæk 1, 3 & 5 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðinar nær lóðarmörkum en 3 metrar eigandi leitar einnig eftir samþykki frá Sveitarfélaginu Árborg.
Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og Umhverfissviðs
Vísað í nefnd
13. 2508117 - Stekkjarland 1A - Tilkynning um samþkki á byggingaráformum, smáhýsi
Sigríður V. Bragadóttir & Hafþór B. Guðmundsson eigendur af Stekkjarlandi 1A og Sesselía Söring Þórisdóttir eigandi af Stekkjarland 1B tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna smáhýsis nær lóðarmörkum en 3 metrar.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5 f. og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Samþykkt
14. 2508042 - Umsagnarbeiði - Starfsleyfi Mói Luxury House
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Moiluxurycare ehf um starfsleyfi vegna reksturs gistingar.

Heiti staðar Mói, 801 Selfoss F2340845

Byggingarfulltrúi leggst gegn útgáfu starfsleyfis þar sem að framlögð gögn sem fyrir liggja frá leyfisveitenda er varðar umfang og noktun hússins, er ekki ljóst hvort um er að ræða útleigu stakra herbergja eða hússins í heild sinni. Auk þess er tilgreint er innan umsóknar um rekstrarleyfi þá er tekið fram að um frístundahús sé að ræða, sem er ekki í takt við skráða notkun hússins né tilgreindrar notkunar þess samkvæmt deiliskipulagi.
Hafnað
15. 2508043 - Umsagnarbeiði - Starfsleyfi fyrir útleigu íbúða Búðarstíg 19c
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Fjallgarður ehf um starfsleyfi vegna reksturs gistingar.

Heiti staðar Búðarstígur 19c, 820 Eyrarbakka F2275926, F2323519, F2323520


Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist öryggisúttekt þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
16. 2508049 - Rekstrarleyfisumsögn - Fyrir gistingu í flokki II Búðarstígur 19c fyrir Fjallagarð ehf F2275926
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna umsóknar Fjallgarður ehf. um rekstrarleyfi til gistinga í flokki II, Tegund: G - Íbúðir.
Heiti staðar: Sjávargata, Búðarstígur 19c, 820 Eyrarbakki F2275926, rýmisnúmer 01 0101 og 01 0102 hámarksfjöldi gesta er 12.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist öryggisúttekt þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt
17. 2508061 - Rekstrarleyfisumsögn - Fyrir gistingu í flokki II Búðarstígur 19c fyrir Fjallagarð ehf F2323519
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna umsóknar Fjallgarður ehf. um rekstrarleyfi til gistinga í flokki II, Tegund: G - Íbúðir.
Heiti staðar: Sjávargata, Búðarstígur 19c, 820 Eyrarbakki F2323519, rýmisnúmer 01 0102 hámarksfjöldi gesta er 4.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist öryggisúttekt þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt
18. 2508062 - Rekstrarleyfisumsögn - Fyrir gistingu í flokki II Búðarstígur 19c fyrir Fjallagarð ehf F2323520
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna umsóknar Fjallgarður ehf. um rekstrarleyfi til gistinga í flokki II, Tegund: G - Íbúðir.
Heiti staðar: Sjávargata, Búðarstígur 19c, 820 Eyrarbakki F2323520, rýmisnúmer 01 0103 hámarksfjöldi gesta er 4.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist öryggisúttekt þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt
19. 2508153 - Rekstrarleyfisumsögn - Fyrir gistinu fyrir Moiluxurycare ehf í Móa 801 Selfoss
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna umsóknar Móiluxurycare ehf. um rekstrarleyfi til gistinga í flokki II, Tegund: H - Frístundahús.
Heiti staðar: Mói, Byggðarhorn 48, 801 Selfoss F2340845, rýmisnúmer 01 0101 hámarksfjöldi gesta er 10.

Byggingarfulltrúi leggst gegn útgáfu starfsleyfis þar sem að framlögð gögn sem fyrir liggja frá leyfisveitenda er varðar umfang og noktun hússins, er ekki ljóst hvort um er að ræða útleigu stakra herbergja eða hússins í heild sinni. Auk þess er tilgreint er innan umsóknar um rekstrarleyfi þá er tekið fram að um frístundahús sé að ræða, sem er ekki í takt við skráða notkun hússins né tilgreindrar notkunar þess samkvæmt deiliskipulagi.
Hafnað

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica