Fundargerðir

Til baka Prenta
Eigna- og veitunefnd - 54

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
21.04.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Jóhann Jónsson nefndarmaður, D-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista,
Arnar Freyr Ólafsson nefndarmaður, B-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson nefndarmaður, S-lista,
Atli Marel Vokes sviðsstjóri, Sigurður Ólafsson deildarstjóri.
Fundargerð ritaði: Atli Marel Vokes, Sviðsstjóri


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
2. 2006052 - Bygging grunnskóla í Björkurstykki - Stekkjaskóli
Farið yfir drög að hönnunarferli 3.áfanga
Nefndin felur sviðstjóra að fara í viðræður við hönnuði um hönnun 3.áfanga Stekkjaskóla.
3. 2604140 - Borun SE-48
Farið yfir drög að verksamningi vegna borunar á SE-48
Nefndin felur sviðsstjóra að undirrita verksamning vegna borunar á SE-48 sem er suðvestan við sláturhús SS.
Endurskoða þarf fjárfestingaráætlun að kostnaðarmati verksins.
4. 2503270 - Endurnýjun á Eyrarlögn frá dælustöð Víkurheiði niður á strönd
Nefndin felur sviðsstjóra að undirrita samning við lægstbjóðanda svo fremi sem hann uppfylli kröfur verðkönnunargagna.
Niðurstöðulisti.pdf
5. 2105457 - Fyrirhuguð byggingaráforma á lóð MS Selfossi - Austurvegur 65
Farið yfir minnisblað ráðgjafa.
Eigna- og veitunefnd leggur til við bæjarráð að gert sé samkomulag við MS vegna byggingaráforma þeirra á lóðinni Austurvegur 65, lnr.161889, þar sem m.a. væri kveðið á um færslu á lögnum og breytinga á kvöðum vegna lagna innan lóðarinnar í samræmi við minnisblað ráðgjafa.
Erindi til kynningar
1. 2208282 - Fjölgun rafhleðslustöðva í Svf. Árborg
Farið yfir tillögur að útboði á rekstri rafhleðslustöðva í sveitarfélaginu.
Nefndin felur sviðsstjóra að vinna málið áfram og afla gagna um notkun á stöðvunum sem fyrir eru í dag á vegum sveitarfélagsins.
6. 2505194 - Eyrargata - Eyrarbakka - endurnýjun og yfirborðsfrágangur á yfirborði gatna og stíga
Farið yfir niðurstöðu kærunefndar útboðsmála.
Nefndin fagnar niðurstöðu kærunefndar útboðsmála um að vísa frá kæru vegna útboðs á hellulögn við Eyrargötu á Eyrarbakka. Kæran barst í lok september og tók það kærunefndina því tæpa sjö mánuði að komast að niðurstöðu sem er óásættanlegut tími.

Eigna- og veitunefnd harmar hversu langan tíma það tók að fá niðurstöðu í málinu. Sá dráttur hefur tafið framkvæmdir verulega og í leiðinni skapað óþægindi fyrir íbúa og aðra sem fara um Eyrargötu.

Von er á að framkvæmdir hefjist sem fyrst og verklok verða á verkinu í sumar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:07 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica