Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 173

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
27.05.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson byggingafulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2605117 - Breiðamýri 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
María Björk Gunnarsdóttir hönnuður fyrir hönd Eimskip Ísland ehf. sækir um leyfi til að byggja atvinnuhúsnæði.
Helstu stærðir eru; 1.508,2m² og 7.279,0m³.
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnareftirliti Árnessýslu ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
2. 2605178 - Norðurbraut 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ragnar Kristinn Lárusson fyrir hönd Dima Elevators ehf. sækir um leyfi til að byggja íbúðarhús. Helstu stærðir eru; 806,0m² og 2.908,0m³
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.

Erindinu er frestað vegna ófullnægjandi gagna.
Frestað
3. 2605113 - Álalækur - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Anna Guðlaug Sigurðardóttir eigandi af íbúð 02 0101 að Álalæk 28 og aðrir eigendur Álalæk 28 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðinar nær lóðarmörkum en 3 metrar.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform er varðar skjólgirðingu enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5.e og leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5. um skjólveggi og girðingar.
Samþykkt
4. 2605280 - Laufhagi 2 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - skjólgirðing
Guðrún Rakel Svandísardóttir eigandi af Laufhagi 2 óskar eftir samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðingar nær lóðarmörkum en 3 metrar frá Sveitarfélaginu Árborg.
Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og Umhverfissviðs.
Vísað í nefnd
5. 2605307 - Móstekkur 2-4 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - skjólgirðing
Húsfélögin að Móstekk 2 & 4 óskar eftir samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðingar nær lóðarmörkum en 3 metrar frá Sveitarfélaginu Árborg.
Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og Umhverfissviðs.
Vísað í nefnd
6. 2605306 - Suðurgata 9 - tilkynning um skjólvegg og smáhýsi
Ellert Þór Hlíðberg eigandi af Suðurgötu 9 óskar eftir samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðingar og smáhýsis frá Sveitarfélaginu Árborg.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform er varðar skjólgirðingu enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5.e og leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5. um skjólveggi og girðingar.

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform er varðar smáhýsi enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5 f. og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Samþykkt
7. 2605202 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Kjötvinnslan ehf að Gagnheiði 59
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Kjötvinnslan ehf. vegna útgáfu starfsleyfi fyrir rekstur á kjötvinnslu að Gagnheiði 59.
Í umsókn vantar fasteignanúmer eða rýmisnúmer þess hluta sem starfsemin kemur til að vera, einnig er ekki gert ráð fyrir fituskilju á samþykktum teikningum sem Byggingarfulltrúi hefur samþykkt.
Frestað
8. 2605279 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Hótel Þóristún að Þóristúni 1
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna umsóknar Guðrúnar Þórisdóttur um endurnýjun á starfsleyfi til reksturs gistinga.
Heiti staðar: Hótel Þóristún, Þóristún 1, 800 Selfossi F2187669, rýmisnúmer 01 - 0001, F2187671 03 0101.

Skipulags- og byggingarfulltrúi veita jákvæða umsögn gegn því að skoðun eldvarnareftirlits Árnessýslu og byggingarfulltrúa sé án athugasemda.
Samþykkt
9. 2605281 - Stöðuleyfi - Víkurheiði 6
Borgarverk ehf. óskar eftir stöðuleyfi fyrir fjórum 20 feta gámum og fjórum 40 feta gámum að Víkurheiði 6.
Byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir fjórum 20 feta gámum og fjórum 40 feta gámum svo lengi sem að lóðin sé girt af með mannheldri aflokaðri girðingu.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica