Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 128

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
03.04.2024 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2403322 - Byggðarhorn Búgarður 5B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Helgi Kjartansson hönnuður fyrir hönd Sigurðar Arnar Sigurðssonar sækir um leyfi til að byggja vélaskemmu.
Helstu stærðir eru; 240,0m² & 1.306,1m³

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa og skil á skráningartöflu. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
2. 2401180 - Eyravegur 28-30 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ragnar Magnússon hönnuður fyrir hönd Funaberg ehf sækir um leyfi til að byggja fjölbýlishús. Umrætt erindi var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 124 og var því hafnað þar sem að húsið var ekki í samræmi við deiliskipulag.
Helstu stærðir eru; 3.635,6 m² og 10.947 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
3. 2402368 - Miðstræti 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hákon Ingi Sveinbjörnsson hönnuður fyrir hönd Sigtún þróunarfélags ehf. sækir um leyfi til að byggja tvíbýli. Umrætt erindi var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 127 og var því frestað.
Helstu stærðir eru; 239,4m2 og 708,8m3

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
4. 2403351 - Langholt 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Helgi Már Halldórsson hönnuður fyrir hönd Byko ehf. sækir um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og byggja vindfang.
Helstu stærðir eru; 12.4m²

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa og skil á skráningartöflu. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
5. 2403343 - Móstekkur 61-63 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnunarstjóri fyrir hönd Fortis ehf. sækir um leyfi til að byggja parhús.
Helstu stærðir eru; 364,7m² og 1.542,2 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Erindið er ekki í samræmi við deiliskipulag.
Erindinu er hafnað.
Hafnað
6. 2403369 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Miðtún 9-11A
Trausti Þór Sigurðarson tilkynnir samþykki lóðarhafa Miðtún 7 & 9 tilkynna byggingaráform vegna skjólgirðingu og óskar eftir samþykki frá Sveitarfélaginu Árborg til að setja upp girðingu hæð 1,8 metra á hæð á suðurhluta lóðar.

Vísað til samráðsfundar með Mannvirkja- og umhverfissviði.
Vísað í nefnd
7. 2403380 - Umsagnarbeiðni - endurnýjun á starfsleyfi fyrir Nettó (Austurvegur 42)
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna endurnæýjun starfsleyfis fyrir Nettó að Austurvegi 42.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.
Samþykkt
8. 2403344 - Umsagnarbeiðni - Rekstrarleyfisumsögn vegna gistingu í flokki II að Hólum 801 Selfoss
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Kleifarnef ehf á Hólum Selfossi 801.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica