Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Farsæld barna

Farsæld barna felur í sér að tryggja aðstæður sem skapa barni skilyrði til að ná líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðilegum og félagslegum þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar samkvæmt nýrri löggjöf um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

FarsaeldMeginmarkmið laganna er að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Samþætt þjónusta er skipulögð og samfelld þjónusta sem hefur það að markmiði að stuðla að farsæld barns og er veitt af þeim þjónustuveitendum sem eru best til þess fallnir að mæta þörfum barns hverju sinni.

Farsaeld_barns

 

Foreldrar og börn í Árborg hafa aðgang að tengilið í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins

Tengiliður hefur hagsmuni barns að leiðarljósi í samstarfi og samráði við foreldra og barn.

Hlutverk tengiliðar er að:

  • Veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns.
  • Aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns.
  • Skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns.
  • Koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra þjónustu í þágu farsældar barns.
  • Taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á.

Nánar um farsæld barna í leik- og grunnskólum | Tengiliðir


Stigskiptin farsældar þjónustu

 

farsæld stig þjónustu

Skilgreining á þjónustu sveitarfélagsins Árborgar  

Ný lög um farsæld barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Markmið laganna er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum.

Fjölskyldum og börnum sem þurfa stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla.

Í sveitarfélaginu Árborg er veitt margvísleg þjónusta á mismunandi stigum og reynt er að mæta einstaklingnum þar sem hann er staddur hverju sinni miðað við þjónustuþörf. Hluti þjónustunnar er skilgreind í lögum t.d. barnaverndarlögum og lögum um þjónustu við fatlað fólk og er því aðgengileg fyrir þá einstaklinga sem falla undir viðkomandi lög.

Í Árborg er þjónustan skilgreind með eftirfarandi hætti:

Grunnþjónusta

Almenn þjónusta vísar til grunnþjónustu og forvarna sem er veitt öllum börnum og unglingum með það að markmiði að tryggja þeim jöfn tækifæri til náms, þroska og vellíðunar. Undir almenna þjónustu fellur daglegt starf skóla- og frístundastarfs og felur í sér kennslu samkvæmt menntastefnu sveitarfélagsins og aðalnámskrá leik- og grunnskóla. Einnig annars konar þjónusta innan skóla- og frístundastarfs svo sem náms- og starfsráðgjöf og allur almennur stuðningur sem barn þarf í námi.

Snemmtæk þjónusta

Snemmtæk þjónusta (1. stig farsældar) er veitt eins fljótt og hægt er eftir að merki um vanlíðan, félagsvanda, þroska-, hegðunar- og/eða námsvanda koma fram. Þjónustunni er ætlað að koma í veg fyrir að vandinn þróist eða dýpki. Markmiðið er að bregðast við á fyrstu stigum vanda til að styrkja börn og fjölskyldur, áður en meiri íhlutun verður nauðsynleg.

Sértæk þjónusta

Sértæk þjónusta (2. stig farsældar) er markviss og einstaklingsmiðaður stuðningur sem veittur er þegar barn hefur þörf fyrir meiri þjónustu en almenna og snemmtæka þjónustan nær yfir. Markmið með sértækri þjónustu er að skapa barni skilyrði til að ná árangri í námi, efla félagsleg samskipti, jákvæða hegðun og líðan. Barn er að glíma við vanda sem krefst aðkomu fleiri aðila. Sértæk þjónusta er veitt áður en farið er í umfangsmeiri eða sérhæfðari þjónustu og getur falið í sér teymisvinnu innan eða utan skóla. Í sumum tilfellum er þörf á frekari greiningu til að skýra betur stuðningsþarfir barnsins til að veita viðeigandi þjónustu.

Sérhæfð þjónusta

Sérhæfð þjónusta (3. stig farsældar) er markviss og sérsniðin þjónusta sem gripið er til þegar önnur úrræði nægja ekki til að mæta þörfum barnsins. Börn sem þurfa á sérhæfðri þjónustu að halda glíma jafnan við flókinn og fjölþættan vanda og hafa mikla umönnunar- og stuðningsþörf. Þverfaglegt teymi sérfræðinga kemur að málinu og vinnur saman að því að veita þjónustu sem er sniðin að einstaklingsbundnum þörfum barnsins hverju sinni. Slík þjónusta fellur oft undir ákvæði barnaverndarlaga eða laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, eftir því sem við á.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica