Hreinsun rotþróa í dreifbýli við Stokkseyri og Eyrarbakka
Hreinsitækni mun á næstu dögum hreinsa rotþrær á heimilum við dreifbýli Stokkseyrar og við Eyrarbakka.
Rotþrær eru hreinsaðar reglulega á þriggja ára fresti en á síðasta ári voru rotþrær hreinsaðar við Votmúlaveg og í Byggðarhorni. Á næsta ári munu rotþrær í Tjarnabyggð vera hreinsaðar. Enginn aukakostnaður fellur á fasteignaeigendur við reglulega hreinsun rotþróa en kostnaðurinn er greiddur með rotþróargjaldi sem innheimt er með fasteignagjöldum.
Þjónustumiðstöð

