Til upplýsinga | Vegna framkvæmda við nýja borholuhúsið við Hótel Selfoss
Selfossveitur bs. eru þessa dagana að vinna við borholu SE-45, sem er 978m djúp, fóðruð með stálrörum niður á 349m og staðsett við Hótel Selfoss.
Ástæða þessara framkvæmd er að athuga stöðuna á holunni vegna þess að frá því vinnsla hófst þá hefur hún ekki skilað þeim afköstum sem ætlað var eftir prófanir eftir borun.
Grunur beinist að hruni fyrir neðan fóðringu sem hindrar vatnsflæði. Til að kanna það þá þarf að hífa upp búnaðinn sem er í holunni, dælu og rör henni tengd, til að hægt sé að láta myndavél síga niður til könnunar.
Með þessu eru vonir bundnar við að auka framleiðslugetu holunnar umtalsvert eða í samræmi við þær væntingar sem prufudælingar gáfu til kynna.

