Tilkynning | Malbiksviðgerðir á Suðurlandsvegi í dag 15. október
Fimmtudaginn 15.okt er stefnt að malbiksviðgerðum á Suðurlandsvegi milli Selfoss og Hveragerðis. Suðurlandsvegur verður lokaður frá Selfossi í átt að Hveragerði á meðan framkvæmdum stendur. Hjáleið verður um Ölfusveg, sjá meðfylgjandi lokunarplan. Áætlað er að framkvæmdir standi yfir frá kl. 09:00 til 20:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.


