Tilkynning til gesta | Sundlaug Stokkseyrar
Framkvæmdir við nuddpott í Sundlaug Stokkseyrar.
Gestum Sundlaugar Stokkseyrar er bent á að á næstu dögum hefjast framkvæmdir við endurnýjun á skel nuddpottsins við sundlaugina.
Framkvæmdir eru áætlaðar að hefjast í byrjun næstu viku og geta tekið allt að 4-6 vikur. Á meðan á framkvæmdum stendur verður nuddpotturinn lokaður gestum.
Markmið framkvæmdanna er að bæta aðstöðu og tryggja örugga og góða þjónustu til framtíðar.
Við biðjum gesti velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir þolinmæðina meðan á framkvæmdum stendur.
Við munum upplýsa um framvindu verksins eftir því sem tilefni gefst og tilkynna þegar nuddpotturinn verður opnaður á ný.
Sundlaugar Árborgar

