Vegagerðin | Malbiksviðgerðir
Þriðjudaginn 18. ágúst og miðvikudaginn 19. ágúst er stefnt á að sinna malbiksviðgerðum á Suðurlandsvegi frá Landvegamótum að Selfossi. Einhverjar tafir geta orðið á umferð á meðan framkvæmdum stendur.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 til kl. 04:00 hvorn dag.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

