Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


45 ára afmæli Myndlistarfélagsins – 45 viðburðir í mars!

  • 1.3.2026 - 31.3.2026, Sandvíkursetur

Það verður sannkölluð listaveisla á Suðurlandi í mars þegar félagið fagnar 45 ára afmæli sínu með heilum 45 sýningum og viðburðum víðsvegar um Suðurland.

Félagið var stofnað í mars árið 1981 af hópi áhugasamra listamanna sem vildu skapa vettvang fyrir myndlist og skapandi starf. Frá þeim tíma hefur félagið vaxið og dafnað og í dag er það öflugt samfélag listafólks með yfir 100 félagsmenn sem vinna í fjölbreyttum miðlum og stílum.

Til að halda upp á þennan áfanga ætlum við að gera vel við okkur með því að fylla marsmánuð af list. Á dagskránni eru fjölmargar sýningar, opnar vinnustofur, listaviðburðir, námskeið, kaffihittingar og fjölskylduvænir viðburðir. Viðburðirnir fara fram á ýmsum stöðum um Suðurland og gefa fólki tækifæri til að upplifa listina á fjölbreyttan hátt.

Markmiðið er einfalt:

Að fagna listinni, félaginu okkar og samfélaginu og bjóða sem flestum að taka þátt.

Við hvetjum alla til að kíkja á viðburði, skoða sýningar og njóta skapandi stemningar með okkur í mars. Flestir viðburðir eru ókeypis og opnir öllum, nema annað sé sérstaklega tekið fram (t.d. viðburðir eins og Málum & Skálum).

Fylgist með dagskránni á heimasíðu félagsins þar sem við kynnum alla 45 viðburðina sem fara fram í afmælismánuðinum.
Komið og fagnið listinni með okkur!

  • Black-and-White-Minimalist-Modern-Schedule-Event-Instagram-Post-7-
  • Black-and-White-Minimalist-Modern-Schedule-Event-Instagram-Post-5-
  • Black-and-White-Minimalist-Modern-Schedule-Event-Instagram-Post
  • Black-and-White-Minimalist-Modern-Schedule-Event-Instagram-Post-3-
  • Black-and-White-Minimalist-Modern-Schedule-Event-Instagram-Post-9-
  • Black-and-White-Minimalist-Modern-Schedule-Event-Instagram-Post-1-
  • Black-and-White-Minimalist-Modern-Schedule-Event-Instagram-Post-12-
  • Black-and-White-Minimalist-Modern-Schedule-Event-Instagram-Post-11-
  • Black-and-White-Minimalist-Modern-Schedule-Event-Instagram-Post-6-
  • Black-and-White-Minimalist-Modern-Schedule-Event-Instagram-Post-4-
  • Black-and-White-Minimalist-Modern-Schedule-Event-Instagram-Post-8-
  • Black-and-White-Minimalist-Modern-Schedule-Event-Instagram-Post-2-
  • Black-and-White-Minimalist-Modern-Schedule-Event-Instagram-Post-13-
  • Black-and-White-Minimalist-Modern-Schedule-Event-Instagram-Post-10-

Viðburðadagatal

27.2.2026 - 30.4.2026 Litla Leikhúsið Skilaboðaskjóðan hjá Leikfélagi Selfoss

Miðasala er hafin á Skilaboðaskjóðuna hjá Leikfélagi Selfoss. 

Sjá nánar
 

1.3.2026 - 31.3.2026 Sandvíkursetur 45 ára afmæli Myndlistarfélagsins – 45 viðburðir í mars!

Það verður sannkölluð listaveisla á Suðurlandi í mars þegar félagið fagnar 45 ára afmæli sínu með heilum 45 sýningum og viðburðum víðsvegar um Suðurland.

Sjá nánar
 

6.3.2026 Sviðið DRAGSHOW Party á Selfossi

Dragdrottningarnar CrisArtista, Miss Agatha P. og Miss Whoop Whoop mæta yfir heiðina og lofa kvöldi fullu af gleði, húmor og ógleymanlegri skemmtun.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica