Jól í Árborg

Hátíðardagskrá aðventu og jóla 2026

Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


DRAGSHOW Party á Selfossi

  • 6.3.2026, Sviðið, 500

Dragdrottningarnar CrisArtista, Miss Agatha P. og Miss Whoop Whoop mæta yfir heiðina og lofa kvöldi fullu af gleði, húmor og ógleymanlegri skemmtun.

Í tilefni af hinsegin viku Árborgar kostar miðinn aðeins 500 kr og allur ágóði rennur til forvarnarhóps Árborgar fyrir hinsegin fræðslu. Þú færð frábæra skemmtun og styður um leið mikilvægt samfélagsverkefni.

Búðu þig undir sturlaða stemningu, glimmer, hlátur og kvöld sem þú vilt ekki missa af.

Komdu með vinum, taktu dansskóna með og vertu með þegar við fögnum fjölbreytileikanum saman!

Það er 18 ára aldurstakmark á þennan viðburð.


Viðburðadagatal

30.10.2026 - 30.11.2026 Litla Leikhúsið Leikfélag Selfoss frumsýnir Grandaveg 7

Leikfélag Selfoss frumsýnir leikverkið Grandaveg 7 föstudaginn 30. október. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur og leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur.

Sjá nánar
 

28.11.2026 - 20.12.2026 Miðbær Selfoss Jólamarkaður við Brúarstræti

Komdu og upplifðu sannkallaða jólastemningu í hjarta Selfoss.
Fjölbreytt úrval af fallegum vörum, handverk, mat, tækifærisgjöfum, jólagjöfum og notalega stemning fyrir alla fjölskylduna.

Sjá nánar
 

29.11.2026 Skálavíkurtún Kveikt á jólatré Stokkseyringa

Sunnudaginn 29. nóvember 2026 kl. 17 kveikjum við á jólatrénu á Stokkseyri, dönsum í kringum það og syngjum jólalög með körlum klæddum rauðu.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica