Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Heima - Ljósmyndasýning | Hanna Siv Bjarnardóttir

  • 3.7.2020 - 26.7.2020, Gallery Stokkur

Hanna Siv Bjarnardóttir heimsótti nokkra af eldri íbúum Stokkseyrar. Í stuttri heimsókn er hægt að komast að ýmsu um manneskjuna sem þar býr en heimilið endurspeglar persónuleika og sögu fólks.

  • 160104132919-2

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar föstudaginn 3. júlí. kl. 17:00 - 23:00 á Gallery Stokk.

  • 20180331125335
  • 150423171533
  • 160104132919-2

 

„Mér finnst áhugavert að sjá hvaða hlutum fólk safnar að sér í gegnum ævina. Í litlu samfélagi þekkjast allir og vita nokkurn veginn hvað er að gerast í lífi hvers og eins. Ég kannast við allt fólkið sem ég heimsótti en hafði komið heim til fæstra. Það er skemmtileg upplifun að koma í heimsókn til alls þessa fólks og sjá hvernig þau hafa komið sér fyrir“.

Hanna Siv Bjarnardóttir

Hanna Siv Bjarnardóttir útskrifaðist úr Ljósmyndaskólanum í janúar 2017. Hún hélt sýningu í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur árið 2018, hefur sett upp yfirlitssýningu á verkum sínum á kaffihúsinu Kaffigott á Stokkseyri, ásamt samsýningum og útskriftarsýningu í Ljósmyndaskólanum.

Stokkur Art Gallery
Hafnargötu 6 | Stokkseyri
stokkur@stokkurartgallery.is | 892 5432


Viðburðadagatal

27.2.2026 - 30.4.2026 Litla Leikhúsið Skilaboðaskjóðan hjá Leikfélagi Selfoss

Miðasala er hafin á Skilaboðaskjóðuna hjá Leikfélagi Selfoss. 

Sjá nánar
 

1.3.2026 - 31.3.2026 Sandvíkursetur 45 ára afmæli Myndlistarfélagsins – 45 viðburðir í mars!

Það verður sannkölluð listaveisla á Suðurlandi í mars þegar félagið fagnar 45 ára afmæli sínu með heilum 45 sýningum og viðburðum víðsvegar um Suðurland.

Sjá nánar
 

17.3.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Komdu að tala íslensku

Vikulegur hittingur þar sem við æfum okkur að tala íslensku á Bókasafni Árborgar Selfossi

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica