Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Kvikmyndahátíð barnanna – Kids for Films | Bíóhúsið Selfossi

  • 10.10.2026 - 11.10.2026, Bíóhúsið

Kvikmyndahátíð barnanna (Kids for Films) er ný kvikmyndahátíð fyrir börn, skipulögð af börnum í Árborg. Haldin 10.- 11. október á Selfossi.

Á hátíðinni fá ungir áhorfendur tækifæri til að uppgötva fjölbreyttar stuttmyndir frá ólíkum löndum og menningarheimum. 

Stuttmyndir frá öllum heimshornum

Uppgötvaðu stuttmyndir frá ólíkum löndum, valdar af börnum. Myndirnar bjóða upp á ný sjónarhorn, spennandi sögur og óvæntar persónur. 

Kíkið á heimasíðu hátíðarinnar til að sjá dagskrá og frekari upplýsingar. 


Viðburðadagatal

1.10.2026 - 31.10.2026 Sveitarfélagið Árborg Menningarmánuðurinn október - DAGSKRÁ 2026

Í ár verður Menningarmánuðurinn október haldinn í sautjánda sinn í Sveitarfélaginu Árborg. Sem fyrr mun sveitarfélagið kynna fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa og verða viðburðir á víð og dreif um sveitarfélagið allan október mánuð.

Sjá nánar
 

25.10.2026 Selfoss Æskuminningar við Ölfusá - söguganga með Björgvini Þ. Valdimarssyni | Frumsýning á stuttmynd um Ölfusá

Björgvin Þ. Valdimarsson tónskáld og kórstjóri býður til sögugöngu sunnudaginn 24. október kl. 14:00 í tilefni frumsýningar á myndbandi eftir Roar Aagestad sem nefnist “Æskuminningar við Ölfusá” og er unnið út frá samnefndu hljómsveitarverki Björgvins.

Sjá nánar
 

27.10.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Komdu að tala íslensku

 Komdu að tala íslensku hefst aftur þriðjudaginn 8. september! / Komdu að tala íslensku is restarting on Tuesday September 8! Everybody welcome!

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica