Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Leik og Sprell söng- og leiklistarnámskeið á Stokkseyri

  • 15.6.2026 - 20.6.2026, 13:00 - 16:00, Íþróttahúsið á Stokkseyri

Stórskemmtilegt söng- og leiklistarnámskeið þar sem sköpuð er glæný og glæsileg sýning og sýnt fyrir aðstandendur. Stútfullt af leikjum, söng og sprelli!

Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur.

5 daga námskeið, kennt 3 klukkustundir í senn, verð: 31.900 krónur. Athygli er vakin á því að hægt er að nýta frístundastyrkinn við skráningu. Kennari námskeiðsins er Sigurpáll Jónar Sigurðarson.

Nánari upplýsingar um námskeið, kennara og skráningu má finna á leikogsprell.is
Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt einnig hafa samband á leikogsprell@gmail.com

Hlökkum til að sprella með ykkur í sumar!



Viðburðadagatal

13.6.2026 - 21.6.2026 Eyrarbakki Opnunarhátíð Alþjóðlegu listahátíðarinnar Oceanus Stórsjór 2026 á Eyrarbakka

Afrakstur vinnu listamannanna sýndur, eftir mánaðardvöl á Eyrarbakka / 
The artists' work is on display, after a month-long stay in Eyrarbakki

Sjá nánar
 

15.6.2026 - 19.6.2026 Tónsmiðja Suðurlands Sumarnámskeið í myndlist: Persónusköpun

Í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67: Myndlist; Persónusköpun
Kennari: Sindri Mjölnir
15. 16. 18. og 19. júní — kl 10:00 - 12:00

Sjá nánar
 

15.6.2026 - 19.6.2026 Tónsmiðja Suðurlands Sumarnámskeið: D&D Grunnur fyrir Leikjameistara (Dungeon Master)

Í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67: D&D Grunnur fyrir Leikjameistara (Dungeon Master)
Kennari: Hafþór Agnar Unnarsson
15. 16. 18. og 19. júní — kl 10:00 - 12:00

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica