Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Sumarnámskeið: D&D Grunnur fyrir Leikjameistara (Dungeon Master)

  • 15.6.2026 - 19.6.2026, Tónsmiðja Suðurlands

Í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67: D&D Grunnur fyrir Leikjameistara (Dungeon Master)
Kennari: Hafþór Agnar Unnarsson
15. 16. 18. og 19. júní — kl 10:00 - 12:00

Á námskeiðinu læra nemendur grunninn á því hvað D&D er og allt það helsta sem þarf að kunna til að verða góður Leikjameistari (DM). Námskeiðið hentar jafnframt fyrir þá sem hafa aldrei prufað D&D en eru forvitnir og þá sem hafa spilað en vilja prófa að búa til og leiða sína eigin herferð (campaign).

Haffi er reyndur DM með áratuga langa reynslu á að búa til og leiða herferðir og undir hans leiðsögn spreyta nemendur sig á að hanna og búa til sinn eigin D&D heim; með þema, söguþráð og tilheyrandi hliðar-ævintýrum (e. side quest’s). Við lok námskeiðsins ættu nemendur að vera með byrjun að herferð til að byggja utan á og verkfæri í farteskinu til að takast á við hin ýmsu óvæntu vandamál og erfiðleika sem fylgja því þegar spilarar óvart, eða viljandi, koma í veg fyrir áætlanir leikjameistarans.

Námskeiðið er haldið í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67 á Selfossi, fyrir 4 - 12 nemendur á táningsaldri.

Verð: 23.900 kr
Skráningarvefur: https://istonsmidjan.speedadmin.dk/registration#/courselist/7


Viðburðadagatal

8.6.2026 Sandvíkursetur Ungmennakvöld 18-30 ára hjá MFÁ

Ungmennakvöld MFÁ eru á mánudögum þar sem listakonan Natasja Buus leiðir kvöldin. 

Sjá nánar
 

13.6.2026 - 21.6.2026 Eyrarbakki Opnunarhátíð Alþjóðlegu listahátíðarinnar Oceanus Stórsjór 2026 á Eyrarbakka

Afrakstur vinnu listamannanna sýndur, eftir mánaðardvöl á Eyrarbakka / 
The artists' work is on display, after a month-long stay in Eyrarbakki

Sjá nánar
 

15.6.2026 - 19.6.2026 Tónsmiðja Suðurlands Sumarnámskeið í myndlist: Persónusköpun

Í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67: Myndlist; Persónusköpun
Kennari: Sindri Mjölnir
15. 16. 18. og 19. júní — kl 10:00 - 12:00

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica