Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


LITALAND - Leikhópurinn Lotta á Selfossi

  • 19.6.2026, 17:00 - 19:00, Sigtúnsgarður

Leikhópurinn Lotta fagnar tuttugu ára afmæli í ár og setur af því tilefni upp söngleikinn Litaland um allt land í sumar! Eins og alltaf býður hópurinn upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem saman koma söngur, gleði, dans og húmor fyrir unga sem aldna. Sýningaplan sumarsins má finna á www.leikhopurinnlotta.is.

Sýningin er um klukkustund að lengd og fer fram utandyra. Við hvetjum gesti til að klæða sig eftir veðri, taka með sér nesti, teppi og góðan ævintýraanda. Einnig er gott að hafa símann vel hlaðinn, því að sýningu lokinni gefst áhorfendum kostur á að taka mynd með sinni uppáhalds ævintýrapersónu.

Miðaverð er 4.900 kr. (frítt fyrir tveggja ára og yngri) og hægt er að kaupa miða á staðnum og á tix.is. 

Sýningin er styrkt af sveitarfélaginu Árborg.

Viðskiptavinir í Stofni hjá Sjóvá fá 2 miða á verði 1.

Hlökkum til að sjá ykkur!
________________________________________

Um sýninguna


Litaland segir frá grunnlitunum gulum, rauðum og bláum – eða Gulverjum, Rauðingjum og Bláungum. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og í upphafi eru samskipti milli heimanna lítil, enda vill hver litur halda sig út af fyrir sig.

Fljótlega dregur þó til tíðinda. Bláungar neyðast til að leita skjóls hjá Gulverjum í Gulheimum, þar sem heimur þeirra bláu er að hverfa og þeir standa eftir án samastaðar. Sú viðkvæma staða leiðir til spennandi og ófyrirsjáanlegrar framvindu.

Í Rauðheimum virðist allt á yfirborðinu vera með felldu. Þar undirbúa Rauðingjar komu nýs litar sem væntanlegur er í hópinn. Rjóð, móðir hans, er þó treg til að segja frá því hver faðirinn er… Kannski hefur einhver litablöndun átt sér stað í Rauðheimum?

________________________________________

Aðstandendur

Leikstjórn: Sigsteinn Sigurbergsson & Þórunn Lárusdóttir
Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen

Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson & Sumarliði V Snæland Ingimarsson

Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Þórður Gunnar Þorvaldsson
Höfundar lagatexta: Sævar Sigurgeirsson & Baldur Ragnarsson
Hljóðblöndun: Þórður Gunnar Þorvaldsson

Búningahönnun: Aldís Gyða Davíðsdóttir, Rósa Ásgeirsdóttir, Ídris R. Berman
Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson
Leikmunir: Leikhópurinn

Andrea Ösp Karlsdóttir - Bál, Litli Litur, Hafdís
Anna Bergljót Thorarensen - Glódís, Ástrós, Marín
Rósa Ásgeirsdóttir - Rjóð, Aldin, Særún
Sumarliði V Snæland Ingimarsson - Geisli, Blær, Hjörtur þjónn
Stefán Benedikt Vilhelmsson - Afi gamli, Rósmundur


Viðburðadagatal

1.6.2026 Sandvíkursetur Ungmennakvöld 18-30 ára hjá MFÁ

Ungmennakvöld MFÁ eru á mánudögum þar sem listakonan Natasja Buus leiðir kvöldin. 

Sjá nánar
 

8.6.2026 Sandvíkursetur Ungmennakvöld 18-30 ára hjá MFÁ

Ungmennakvöld MFÁ eru á mánudögum þar sem listakonan Natasja Buus leiðir kvöldin. 

Sjá nánar
 

13.6.2026 - 21.6.2026 Eyrarbakki Opnunarhátíð Alþjóðlegu listahátíðarinnar Oceanus Stórsjór 2026 á Eyrarbakka

Afrakstur vinnu listamannanna sýndur, eftir mánaðardvöl á Eyrarbakka / 
The artists' work is on display, after a month-long stay in Eyrarbakki

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica