Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Sumarlestur 2026

  • 16.6.2026 - 30.6.2026, Bókasafn Árborgar, Selfoss

Þriðjudaga 16. júní, 23. júní og 30. júní kl. 11:00 eða 13:00.

Sumarlestur Bókasafns Árborgar Selfossi hefst með prompi og prakt þann 16. júní þegar við fáum Sævar Helga Bragason í heimsókn!

Sumarlestur er fyrir börn á aldrinum 8-11 ára, þátttakendur mæta kl. 11 eða kl. 13 eftir því sem hentar þeim betur og hvert skipti stendur yfir í u.þ.b. klukkutíma.

Við fáum gesti, tökum þátt í happdrætti, föndrum og fyrst og fremst verður stuðlað að því að viðhalda lestrarhæfni og kynna ævintýraheim bóka fyrir börnunum.

Þátttaka er ókeypis.

Skráning er nauðsynleg en mæting er alveg frjáls, t.d. ef þátttakandi kemst bara í suma tímana.


Viðburðadagatal

13.6.2026 - 21.6.2026 Eyrarbakki Opnunarhátíð Alþjóðlegu listahátíðarinnar Oceanus Stórsjór 2026 á Eyrarbakka

Afrakstur vinnu listamannanna sýndur, eftir mánaðardvöl á Eyrarbakka / 
The artists' work is on display, after a month-long stay in Eyrarbakki

Sjá nánar
 

15.6.2026 - 19.6.2026 Tónsmiðja Suðurlands Sumarnámskeið í myndlist: Persónusköpun

Í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67: Myndlist; Persónusköpun
Kennari: Sindri Mjölnir
15. 16. 18. og 19. júní — kl 10:00 - 12:00

Sjá nánar
 

15.6.2026 - 19.6.2026 Tónsmiðja Suðurlands Sumarnámskeið: D&D Grunnur fyrir Leikjameistara (Dungeon Master)

Í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67: D&D Grunnur fyrir Leikjameistara (Dungeon Master)
Kennari: Hafþór Agnar Unnarsson
15. 16. 18. og 19. júní — kl 10:00 - 12:00

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica