Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Vetrartónar | Nordic Affect ásamt Ian Wilson og Eyjólfi Eyjólfssyni

  • 15.10.2024, 20:00 - 22:00, Stokkseyrarkirkja

Tónleikarnir í Stokkseyrarkirkju verða fjölbreyttir en sérstök áhersla verður lögð á hinn merka tónlistararf strandarinnar.

  • Nordic-Affect-01

Á öðrum tónleikum Vetrartóna, nýrrar tónleikaraðar við Stokkseyrarkirkju, kemur fram tónlistarhópurinn Nordic Affect og flytur tónlist sem hverfist um hafið, barokkverk og þjóðlög í bland. 

Ian-WilsonSelshamur, fárviðri, hafballaða og margt fleira kemur við sögu en sérstakir gestir verða Ian Wilson blokkflautuleikari og Eyjólfur Eyjólfsson söngvari sem jafnframt leikur á langspil og hvannarflautu.

Aðangur er ókeypis og öll velkomin. Tekið verður við frjálsum framlögum í anddyri kirkjunnar. Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Suðurlands.

Nordic Affect hefur komið sér á kortið sem framsækinn tónlistarhópur en hópurinn var stofnaður árið 2005. Gagnrýnendur innan lands og utan hafa hælt hópnum í hástert, m.a. fyrir ‘ineffable synergy between the performers' (San Francisco Classical Voice), lýst honum sem ‘multi-disciplinary force of nature' (A Closer Listen) og sem gersemi í íslensku tónlistarlífi (Fréttablaðið). 

EE-m.-langspilNordic Affect hlaut tilnefningu til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 2013 og var valinn tónlistarhópur ársins innan sígildrar og samtímatónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum ári síðar. Nordic Affect hefur jafnframt verið útnefndur sem Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar og var á árunum 2018-2020 staðarhópur Myrkra Músíkdaga.

Nordic Affect hefur frá stofnun 2005 komið fram á fjölda hátíða, þar á meðal TRANSIT Festival (BE), November Music (NL), Skaņu Mežs (LV), KLANG festival (DK), Ensems Festival (SP) og Estonian Music Days (EE). Hópurinn hefur jafnframt tvisvar haldið í tónleikaferð um Bandaríkin. Plötur Nordic Affect hafa verið gefnar út af Smekkleysu, Brilliant Classics, Musmap, Carrier Records, Sono Luminus og Øra Fonogram. Þær hafa hlotið frábæra dóma í erlendum tónlistarblöðum og m.a. ratað inn á lista yfir bestu plötur ársins hjá m.a. The Chicago Reader, 5:4, AnEarful, The Boston Globe, I Care if You Listen og The New Yorker.

Listrænn stjórnandi Nordic Affect er Halla Steinunn Stefánsdóttir.

Nordic Affect er styrkt af Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg


Viðburðadagatal

17.5.2025 - 14.6.2025 Listagjáin Listagjáin | Sigurlín Grímsdóttir

Sigurlín Grímsdóttir sýnir valin málverk í Listagjá Bókasafns Árborgar að Austurvegi 2, Selfossi. 

Sjá nánar
 

5.6.2025 17:00 - 18:00 Tryggvaskáli Hraðstefnumót við íslenskuna | Speed date with the icelandic language

Viltu tala íslensku? Hér er sénsinn! Hraðstefnumót við íslenskuna í Tryggvaskála fimmtudaginn 5. júní kl. 17:00. Polski, English, Español below.

Sjá nánar
 

10.6.2025 - 22.8.2025 Sveitarfélagið Árborg Sumarfrístund 2025

Sumarfrístund verður frá 10. júní til 22. ágúst 2025. 

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica