Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Tónlistin á Bakkanum | Menningardagskrá í tali og tónum á Eyrarbakka

  • 11.10.2024, 20:00 - 21:30, Eyrarbakki

Tónlistin á Bakkanum er sögutengd menningardagskrá í tali og tónum sem haldin verður á Eyrarbakka 11. og 12. október sem hluti af Menningarmánuði Árborgar.

Kvöldvökur og samsöngur úr Fjárlögunum í heimahúsum, samræður með tóndæmum í varðveisluhúsi Byggðasafns Árnesinga og hátíðartónleikar í Eyrarbakkakirkju.

Kl. 20 - 21:30 Kvöldvökur í heimahúsum á Eyrarbakka

Félagar úr Söngfjelaginu og Leikfélagi Eyrarbakka endurvekja gömlu kvöldvökustemmninguna með söng og sögum í völdum heimahúsum á Bakkanum föstudagskvöldið 11. október. Kvöldvökur verða á eftirtöldum stöðum og er fólk velkomið svo lengi sem húsrúm leyfir:

  • Hjá Hafdísi í Heimatúni, Túngötu 2
  • Hjá Auði og Rúnar, Hulduhóli 24
  • Hjá Ástu á Kaldbak
  • Hjá Gerði og Gísla, Túngötu 41
Í Húsinu er einnig kvöldvaka sem einsöngvararnir Björg Þórhallsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson og Hildigunnur Einarsdóttir, ásamt Hilmari Erni Agnarssyni og félögum úr leikfélagi Eyrarbakka munu skapa ógleymanlega kvöldvökustemningu.

Ókeypis aðgangur!

Kvöldvökur í heimahúsum á Eyrarbakka | Facebook


Viðburðadagatal

17.5.2025 - 14.6.2025 Listagjáin Listagjáin | Sigurlín Grímsdóttir

Sigurlín Grímsdóttir sýnir valin málverk í Listagjá Bókasafns Árborgar að Austurvegi 2, Selfossi. 

Sjá nánar
 

5.6.2025 17:00 - 18:00 Tryggvaskáli Hraðstefnumót við íslenskuna | Speed date with the icelandic language

Viltu tala íslensku? Hér er sénsinn! Hraðstefnumót við íslenskuna í Tryggvaskála fimmtudaginn 5. júní kl. 17:00. Polski, English, Español below.

Sjá nánar
 

10.6.2025 - 22.8.2025 Sveitarfélagið Árborg Sumarfrístund 2025

Sumarfrístund verður frá 10. júní til 22. ágúst 2025. 

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica