Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Samvinna eftir skilnað | Námskeið 2024

  • 5.3.2024, 17:00 - 19:00, Ráðhús Árborgar
  • 7.3.2024, 17:00 - 19:00, Ráðhús Árborgar
  • 12.3.2024, 17:00 - 19:00, Ráðhús Árborgar

Velferðarþjónusta Árborgar býður foreldrum í Árborg upp á þriggja daga námskeið dagana 05., 07. og 12. mars frá kl. 17:00 til 19:00 á 3. hæð í Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2.

Námskeiðið er fyrir alla foreldra sem vilja bæta samstarf sitt með hagsmuni barnsins að leiðarljósi undir yfirskriftinni Samvinna eftir skilnað - barnanna vegna.

Námskeiðið samanstendur af þremur þemum:

  • Foreldrar og áskoranir í tengslum við skilnað
  • Áhrif skilnaðar á börn og samskipti á forsendum barna
  • Foreldrasamvinna og samstarf í verki

Þjónustan er foreldrum Árborgar að kostnaðarlausu. Það er ekki skilyrði að báðir foreldrar barnsins nýti sér þessa þjónustu.

Umsjónarmenn námskeiðsins eru Bryndís Guðmundsdóttir MA félagsráðgjafi, Hekla Dögg Ásmundsdóttir MA félagsráðgjafi og Heiða Rún Sveinsdóttir fjölskyldufræðingur.

Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið fullordinsteymi@arborg.is fram þarf að koma nafn, kennitala og símanúmer. Í kjölfar skráningar mun SES ráðgjafi hafa samband.

Nánari upplýsingar um námsefnið | SES


Viðburðadagatal

2.3.2024 - 25.8.2024 Listasafn Árnesinga Listasafn Árnesinga | Fjórar sýningar

Fjórar sýningar frá 02. mars til og með 25. ágúst.
Loftnet | Hamflettur | Kaþarsis | Draumur móður minnar

Sjá nánar
 

16.7.2024 - 16.9.2024 Listagjáin Kristjana sýnir í Listagjánni

Kristjana Gunnarsdóttir hefur opnað sýningu í Listagjánni á Selfossi. Sýningin er opin á opnunartíma Bókasafnsins og stendur til 16. september. 

Sjá nánar
 

27.7.2024 10:00 - 16:00 Sumarmarkaður á Selfossi 2024

Í sumar, alla laugardaga, verður haldinn útimarkaður í Tryggvagarði á Selfossi frá kl. 10:00 til 16:00.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica