Tónleikar fyrrum félaga Unglingakórs Selfosskirkju
Fyrrum félagar úr Unglingakór Selfosskirkju koma saman til tónleikahalds í Selfosskirkju sunnudaginn 20. september kl: 17.00. Stjórnandi er Margrét Bóasdóttir og meðleikari Sólveig Anna Jónsdóttir.
Tilefni tónleikanna má rekja til 70 ára afmælis Selfosskirkju fyrr á árinu.
Þá sungu fyrrum og núverandi kórfélagar saman og kviknaði í kjölfarið hugmynd um að skipuleggja frekari endurfundi. Hópurinn kemur saman í æfingabúðum í Skálholti 19. - 20. september og rifjar upp verk sem sungin voru á starfstíma kórsins. Á efnisskrá tónleikanna verða meðal annars Þó þú langförull legðir og, Heyr, himna smiður. og Go Down Moses.
Rætur Unglingakórs Selfosskirkju má rekja til þess þegar Glúmur Gylfason stofnaði barnakór við kirkjuna árið 1988 en árið 1992 kom Stefán Þorleifsson til liðs við hann. Kórstarfið veitti börnum og unglingum á Selfossi markvissa þjálfun í söng, raddbeitingu og samsöng og var jafnframt mikilvægur vettvangur félagsstarfs og tengslamyndunar.
Á fyrstu árum starfsins tók kórinn þátt í flutningi á Gloria eftir Antonio Vivaldi ásamt Kór Kórskóla Langholtskirkju og á Missa brevis eftir Franz Joseph Haydn. Kórinn fór einnig í tónleikaferðir til Skotlands og Danmerkur.
Margrét Bóasdóttir tók síðar við stjórn kórsins. Undir hennar stjórn tók hópurinn þátt í fjölbreyttum og metnaðarfullum verkefnum, meðal annars jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og flutningi á Ceremony of Carols eftir Benjamin Britten. Kórinn fór í tónleikaferð til Bandaríkjanna og tók einnig þátt í alþjóðlegri tónlistarhátíð og kórakeppni í Cantonigros á Spáni, þar sem hann varð í fimmta sæti í keppni kvennakóra.
Í dag sinnir Edit Molnár starfinu af mikilli fagmennsku og alúð en hún tók við af Jörg Erich Söndermann sem starfaði jafnframt sem organisti við kirkjuna.
Tónleikarnir eru styrktir af Sveitarfélaginu Árborg og Héraðssjóði Suðurprófastsdæmis.
Tónleikarnir hefjast kl. 17.00 sunnudaginn 20. september í Selfosskirkju.
Verið öll velkomin!




